Íslenski boltinn

Umfjöllun: Jafnt í kaflaskiptum leik í Laugardal

Elvar Geir Magnússon skrifar
Morten Smidt, leikmaður Þróttar, í leik gegn KR.
Morten Smidt, leikmaður Þróttar, í leik gegn KR. Mynd/Valli

Þróttur og Fjölnir gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi-deild karla í dag. Góð mæting var á völlinn enda mikil hátíðarhöld vegna afmælis hjá Þrótti. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Morten Smidt kom Þrótti yfir en Ragnar Heimir Gunnarsson jafnaði fyrir Fjölni.

Þróttarar byrjuðu leikinn af mun meiri krafti og munaði litlu að Hjörtur Hjartarson kæmi þeim yfir en Þórður Ingason varði laglega gott skot hans. Eftir tæpan stundarfjórðung varð misskilningur í vörn Fjölnis, Rafn Andri Haraldsson átti góða sendingu á hinn danska Morten Smidt sem lék á varnarmann áður en hann kláraði færið listavel.

Eftir um hálftíma virtust Fjölnismenn vakna og áttu þeir stórhættulega sókn þar sem Þróttur bjargaði tvívegis á marklínu. Á 33. mínútu kom síðan jöfnunarmarkið en það var sérlega glæsilegt. Boltinn datt fyrir Ragnar Heimi Gunnarsson sem átti hnitmiðað skot sem Sindri Snær Jensson, markvörður Þróttar, átti ekki möguleika í.

Staðan 1-1 í hálfleik. Í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum sem bæði áttu ágætar sóknir. Magnús Þórisson, dómari leiksins, benti á punktinn og virtist vera að færa Þrótti vítaspyrnu en tók síðan eftir að aðstoðardómarinn hafði veifað til merkis um rangstöðu og breytti ákvörðun sinni þá skyndilega.

Tvö rauð spjöld fóru á loft en bæði fengu Þróttarar. Hjörtur Hjartarson fékk tvö gul spjöld með skömmu millibili og þar með rautt eftir að hafa verið tekinn af velli. Mjög sérkennileg uppákoma. Hjörtur lét einhver orð falla af bekknum sem aðstoðardómarinn var ekki sáttur með. Þá var Andrés Vilhjálmsson rekinn af velli en hann var of seinn í tæklingu undir lok leiksins.

Leikurinn var mjög rólegur síðustu 20 mínúturnar og niðurstaðan jafntefli 1-1.

Þróttur - Fjölnir 1-1

1-0 Morten Smidt (14.)

1-1 Ragnar Heimir Gunnarsson (33.)

Rauð spjöld: Hjörtur Hjartarson, Þrótti (67.), Andrés Vilhjálmsson, Þrótti (89.)

Valbjarnarvöllur. Áhorfendur: 1.168

Dómari: Magnús Þórisson 6

Skot (á mark): 10-8 (5-3)

Varin skot: Sindri 3 - Þórður 2

Horn: 5-3

Aukaspyrnur fengnar: 8-15

Rangstöður: 4-1

Fjölnir (4-5-1)

Þórður Ingason 6

Gunnar Valur Gunnarsson 5

Ásgeir Aron Ásgeirsson 6

Magnús Ingi Einarsson 6

Ragnar Heimir Gunnarsson 7

Vigfús Arnar Jósepsson 7

Ásgeir Aron Ásgeirsson 6

(82. Illugi Gunnarsson -)

Gunnar Már Guðmundsson 7

Aron Jóhannsson 6

Ágúst Þór Ágústsson 7

Tómas Leifsson 5

(68. Guðmundur Karl Guðmundsson 6)

Jónas Grani Garðarsson 4

(75. Hermann Aðalgeirsson -)

Þróttur (4-4-2)

Sindri Snær Jensson 6

Kristján Ómar Björnsson 7

Runólfur Sveinn Sigmundsson 6

Dennis Danry 7

Birkir Pálsson 6

Magnús Már Lúðvíksson 4

(71. Andrés Vilhjálmsson -)

Haukur Páll Sigurðsson 6

Hallur Hallsson 6

Rafn Andri Haraldsson 8 - Maður leiksins

Morten Smidt 7

(84. Jón Ragnar Jónsson -)

Hjörtur Hjartarson 6

(61. Davíð Þór Rúnarsson 5)

Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: Þróttur - Fjölnir.

Þá er einnig hægt að nálgast Boltavaktina í Vodafone Live! farsímaþjónustunni.






Tengdar fréttir

Ásmundur: Vorum á hælunum í byrjun

Fjölnismenn sóttu eitt stig á Valbjarnarvöll í dag. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var ekki sáttur við byrjunina hjá sínum mönnum en síðan komst liðið í gírinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×