Umfjöllun: Jafnt í kaflaskiptum leik í Laugardal Elvar Geir Magnússon skrifar 23. maí 2009 15:00 Morten Smidt, leikmaður Þróttar, í leik gegn KR. Mynd/Valli
Þróttur og Fjölnir gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi-deild karla í dag. Góð mæting var á völlinn enda mikil hátíðarhöld vegna afmælis hjá Þrótti. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Morten Smidt kom Þrótti yfir en Ragnar Heimir Gunnarsson jafnaði fyrir Fjölni. Þróttarar byrjuðu leikinn af mun meiri krafti og munaði litlu að Hjörtur Hjartarson kæmi þeim yfir en Þórður Ingason varði laglega gott skot hans. Eftir tæpan stundarfjórðung varð misskilningur í vörn Fjölnis, Rafn Andri Haraldsson átti góða sendingu á hinn danska Morten Smidt sem lék á varnarmann áður en hann kláraði færið listavel. Eftir um hálftíma virtust Fjölnismenn vakna og áttu þeir stórhættulega sókn þar sem Þróttur bjargaði tvívegis á marklínu. Á 33. mínútu kom síðan jöfnunarmarkið en það var sérlega glæsilegt. Boltinn datt fyrir Ragnar Heimi Gunnarsson sem átti hnitmiðað skot sem Sindri Snær Jensson, markvörður Þróttar, átti ekki möguleika í. Staðan 1-1 í hálfleik. Í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum sem bæði áttu ágætar sóknir. Magnús Þórisson, dómari leiksins, benti á punktinn og virtist vera að færa Þrótti vítaspyrnu en tók síðan eftir að aðstoðardómarinn hafði veifað til merkis um rangstöðu og breytti ákvörðun sinni þá skyndilega. Tvö rauð spjöld fóru á loft en bæði fengu Þróttarar. Hjörtur Hjartarson fékk tvö gul spjöld með skömmu millibili og þar með rautt eftir að hafa verið tekinn af velli. Mjög sérkennileg uppákoma. Hjörtur lét einhver orð falla af bekknum sem aðstoðardómarinn var ekki sáttur með. Þá var Andrés Vilhjálmsson rekinn af velli en hann var of seinn í tæklingu undir lok leiksins. Leikurinn var mjög rólegur síðustu 20 mínúturnar og niðurstaðan jafntefli 1-1. Þróttur - Fjölnir 1-11-0 Morten Smidt (14.) 1-1 Ragnar Heimir Gunnarsson (33.)Rauð spjöld: Hjörtur Hjartarson, Þrótti (67.), Andrés Vilhjálmsson, Þrótti (89.) Valbjarnarvöllur. Áhorfendur: 1.168 Dómari: Magnús Þórisson 6Skot (á mark): 10-8 (5-3)Varin skot: Sindri 3 - Þórður 2Horn: 5-3Aukaspyrnur fengnar: 8-15Rangstöður: 4-1Fjölnir (4-5-1)Þórður Ingason 6 Gunnar Valur Gunnarsson 5 Ásgeir Aron Ásgeirsson 6 Magnús Ingi Einarsson 6 Ragnar Heimir Gunnarsson 7 Vigfús Arnar Jósepsson 7 Ásgeir Aron Ásgeirsson 6 (82. Illugi Gunnarsson -) Gunnar Már Guðmundsson 7 Aron Jóhannsson 6 Ágúst Þór Ágústsson 7 Tómas Leifsson 5 (68. Guðmundur Karl Guðmundsson 6) Jónas Grani Garðarsson 4 (75. Hermann Aðalgeirsson -) Þróttur (4-4-2)Sindri Snær Jensson 6 Kristján Ómar Björnsson 7 Runólfur Sveinn Sigmundsson 6 Dennis Danry 7 Birkir Pálsson 6 Magnús Már Lúðvíksson 4 (71. Andrés Vilhjálmsson -) Haukur Páll Sigurðsson 6 Hallur Hallsson 6Rafn Andri Haraldsson 8 - Maður leiksins Morten Smidt 7 (84. Jón Ragnar Jónsson -) Hjörtur Hjartarson 6 (61. Davíð Þór Rúnarsson 5) Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: Þróttur - Fjölnir. Þá er einnig hægt að nálgast Boltavaktina í Vodafone Live! farsímaþjónustunni.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Ásmundur: Vorum á hælunum í byrjun Fjölnismenn sóttu eitt stig á Valbjarnarvöll í dag. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var ekki sáttur við byrjunina hjá sínum mönnum en síðan komst liðið í gírinn. 23. maí 2009 18:09 Gunnar: Ekki sáttur við eitt stig Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar, hefði viljað fá meira en eitt stig út úr leiknum gegn Fjölni í dag. 23. maí 2009 18:01 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Kane lendir um helgina Körfubolti Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍBV - FH | Fyrsti leikur ÍBV eftir fall Grindavík/Njarðvík - ÍBV | Gríðarleg barátta á lokasprettinum Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Sjá meira
Ásmundur: Vorum á hælunum í byrjun Fjölnismenn sóttu eitt stig á Valbjarnarvöll í dag. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var ekki sáttur við byrjunina hjá sínum mönnum en síðan komst liðið í gírinn. 23. maí 2009 18:09
Gunnar: Ekki sáttur við eitt stig Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar, hefði viljað fá meira en eitt stig út úr leiknum gegn Fjölni í dag. 23. maí 2009 18:01