Fótbolti

Van der Sar útilokar ekki að spila á HM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Edwin van der Sar, leikmaður Manchester United.
Edwin van der Sar, leikmaður Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Edwin van der Sar, markvörður Manchester United, hefur ekki útilokað að hann gefi kost á sér í hollenska landsliðið á ný.

Hann hætti með landsliðinu eftir EM í fyrra en spilaði aftur með því, til að mynda á móti Íslandi í undankeppni HM, þegar að Maarten Stekelenburg meiddist.

Sjálfur segir þó Van der Sar að hann ætli sér fyrst og fremst að ná sér góðum af þeim meiðslum sem hafa verið að hrjá hann.

„Þegar ég er orðinn heill ætla að ég að einbeita mér að Manchester United en eftir það sjáum við til hvað gerist," sagði hann í samtali við hollenska fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×