Ferill Geirs H. Haarde 23. janúar 2009 19:11
Geir H. Haarde er tuttugasti og sjötti maðurinn sem gengt hefur embætti forsætisráðherra og hefur setið í embætti í þrjátíu og einn mánuð. Geir H. Haarde verður 58 ára í apríl næst komandi. Hann hóf ungur afskipti af stjórnmálum, var formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna og aðstoðarmaður fjármálaráðherra áður en hann var fyrst kjörinn á Alþingi árið 1987. Hann hlaut skjótan frama, varð þingflokksformaður 1991 og fjármálaráðherra 1998. Árið eftir var hann kosinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Geir var fjármálaráðherra í sjö ár eða til ársins 2005, þegar hann varð utanríkisráðherra við brotthvarf Davíðs Oddssonar úr stjórnmálum og það ár varð Geir jafnframt formaður Sjálfstæðisflokksins. En Geir stoppaði ekki lengi við í utanríkisráðuneytinu, því Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokskins sagði óvænt af sér forsætisráðherraembættinu í júní 2006 og Geir varð þá forsætisráðherra, tuttugasti og sjötti maðurinn til að gegna því embætti frá því Hannes Hafstein var skipaður ráðherra Íslands. Forsætisráðherratíð Geirs hefur verið viðburðarík. Í alþingiskosningum í maí 2007 hélt ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks naumum meirihluta á þingi. En fljótlega eftir kosningar tilkynnti Geir að hann ætlaði að ræða við Samfylkinguna og mynduðu þeir flokkar nýja ríkisstjórn nokkrum dögum síðar. Stjórnarsáttmáli þeirrar stjórnar var metnaðarfullur og setja átti mikla fjármuni í félagslega kerfið og alls kyns framkvæmdir. En þau Geir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir voru ekki lengi í Paradís. Sautján mánuðum frá stjórnarmyndun má segja að Geir hafi formlega tilkynnt þjóðinni að mikil vá væri fyrir dyrum. Mikil átök hafa verið í þjóðfélaginu síðan eins og alþjóð veit og nú þremur mánuðum eftir að forsætisráðherra bað Guð að blessa Ísland hefur hann tilkynnt um brotthvarf sitt úr íslenskum stjórnmálum.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fleiri fréttir Hitabratti leysi yfirleitt alltaf eitthvað úr læðingi Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Sjá meira