Fótbolti

Dómari kastaði af sér þvagi í miðjum leik - Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Ótrúleg uppákoma átti sér stað í knattspyrnuleik í Katar á dögunum þegar dómari leiksins kastaði af sér þvagi í miðjum leik.

Atvikið átti sér stað í leik Al Gharafah og Al Khor sem fyrrnefnda liðið vann, 4-1.

En í seinni hálfleik varð dómaranum greinilega það mikið mál að hann gat ekki beðið með að létta á sér þar til leiknum lauk.

Á meðan að annað liðið var að búa sig undir að taka aukaspyrnu lét dómarinn einfaldlega vaða á miðjum vellinum og náðist það á mynd, eins og sjá má hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×