Þrjár stúlkur játuðu árás í Heiðmörk 11. desember 2009 06:00 Í Heiðmörk. Málið vakti óhug þegar það kom upp. Svo virðist sem stúlkurnar hafi verið að hefna sín vegna ummæla sem þolandinn lét falla um ástalíf einnar þeirrar.fréttablaðið/anton
Þrjár sautján ára stúlkur játuðu fyrir dómi í fyrradag að hafa ráðist á fjórðu stúlkuna í Heiðmörk í apríl á þessu ári. Vegna skýlausra játninga stúlknanna var málið í kjölfarið dómtekið og má búast við dómi á næstu vikum. Málið vakti mikla athygli þegar það kom upp á sínum tíma. Systir stúlkunnar sem ráðist var á lýsti hroðalegum líkamlegum sem andlegum áverkum sem stúlkan bar, eftir að ekið var með hana nauðuga frá heimili hennar upp í Heiðmörk og gengið þar í skrokk á henni. Ákæra á hendur stúlkunum var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á miðvikudag. Þinghaldið var lokað en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var þeim öllum gefin að sök minni háttar líkamsárás; tveimur fyrir að hafa kýlt stúlkuna ítrekað með krepptum hnefa og þeirri þriðju fyrir að hafa slegið stúlkuna í hnakkann með flötum lófa þegar komið var inn í bíl að hinum barsmíðunum loknum. Þær játuðu sök fyrir dómi og var málið í kjölfarið dómtekið. Engin skaðabótakrafa fylgdi ákærunni, en á sínum tíma sagði systir stúlkunnar að fjölskyldan myndi ekki sætta sig við neinn málamyndadóm og að farið yrði í einkamál við stúlkurnar ef dómurinn yrði of vægur að þeirra mati. - sh
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira