Innlent

Ráðherra kynnti sér störf og aðbúnað lögreglumanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragna kynnti sér störf og aðbúnað á þremur lögreglustöðvum í gær. Mynd/ Daníel.
Ragna kynnti sér störf og aðbúnað á þremur lögreglustöðvum í gær. Mynd/ Daníel.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra kynnti sér aðbúnað og störf lögreglumanna á þremur lögreglustöðvum höfuðborgarsvæðisins í gær.

„Þetta hefur staðið til í svolítinn tíma hjá mér. En ég taldi að það væri góður tími núna til þess að skoða þetta fyrirkomulag sem þeir hafa sett upp hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu því þeir hafa verið að byggja upp hverfislögreglustöðvar," segir Ragna. Þetta nýja fyrirkomulag gefi lögreglunni tækifæri til þess að mynda góð tengsl við fólk í hverfum borgarinnar.

„Mér fannst þetta áhugavert og þess vegna fór ég nú og kynnti mér þetta. En í leiðinni hafði ég líka tækifæri til þess að ræða við lögreglumenn um ýmis mál," segir Ragna. Aðspurð segist hún þar eiga við mál eins og starfsaðbúnað þeirra. „Það eru auðvitað þau mál sem brenna helst á þeim," segir Ragna.

Ragna segist jafnframt hafa farið í nokkrar heimsóknir til lögregluembætta utan höfuðborgarsvæðisins. „Og ég hef það alltaf á stefnuskránni að heimsækja sem flest embætti. Ég fór til Húsavíkur í vor, Akraness og ég hef líka farið til Akureyrar," segir Ragna. Hún er stefni hins vegar á að sækja enn fleiri embætti. „Sjón er sögu ríkari, eins og sagt er," segir Ragna að lokum.

Umræður um störf og starfsaðbúnað lögreglumanna hafa verið áberandi í vikunni eftir að Vísir birti nafnlaus bréf lögreglumanns sem lýsti áhyggjum sínum af ástandi lögreglumála á landinu.








Tengdar fréttir

Lögreglumenn deyja ungir - partur 3

Lögreglumaðurinn segir undarlega forgangsröðun á fjárlögum til embættisins og lögreglan skuldi nokkrum rannsóknarlögreglumönnum hátt í 200 yfirvinnutíma frá síðasta ári. Að lokum segir hann enga furðu að lögreglumenn deyji ungir.

Lögreglumaður tjáir sig - partur 2

Nú mun vera í bígerð að setja rannsóknarlögreglumenn á vaktir og svelta þar með rannsóknardeild LRH sem nú þegar er á grafarbrúninni. Ljóst er að ef af því verður munu mál fá seinan eða engan framgang hjá lögreglu. En það er víst um seinan, því í dag hrúgast málin upp án þess að lögreglan fái neitt við ráðið.

Sparkaði í andlit lögreglumanns

Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu tóku ölvaðan mann úr umferð í nótt og ætluðu að aka honum heim til hans. Hann varð hins vegar óður í lögreglubílnum og sparkaði í andlit lögreglumanns.

Lögreglumaður tjáir sig öðru sinni

Lögreglumaðurinn sem tjáði sig við fréttastofu fyrr í vikunni, er afar þakklátur fyrir þá umræðu og viðbrögð sem tölvupóstur hans hefur fengið enda þykir honum og fleirum málið mjög mikilvægt. Nú hefur fréttastofu borist annar póstur frá ónefnda lögreglumanninum.

Neyðarkall frá lögreglumanni

Lögreglumönnum er stefnt í hættu vegna fámennis í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í sumum tilfellum eru þeir einir á bílum, jafnvel á næturvöktum um helgar. Svo hljóðar bréf sem fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 fékk sent í gærkvöld frá manni sem segist vera lögreglumaður. Maðurinn segist ekki koma fram undir nafni af ótta við yfirstjórn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×