Castro bauð Vigdísi og Brundtland í sumarfrí á Kúbu 19. febrúar 2008 15:53 Frú Vigdís Finnbogadóttir hitti Fidel Castro á Rio-ráðstefnunni um umhverfismál árið 1192. MYND/Valli
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, ber Fidel Castro vel söguna af stuttri viðkynningu sem hún hafði af honum á umhverfisráðstefnunni í Rio de Janeiro í Brasilíu árið 1992. Castro bauð henni og Gro Harlem Brundtland, þáverandi forsætisráðherra Noregs, í sumarfrí á Kúbu í framhaldi af samtali þeirra. „Hann mætti þarna galvaskur og afar hress og flutti mikla ræðu og langa," segir frú Vigdís um Castro en þau tóku bæði til máls á ráðstefnunni sem þykir hafa markað tímamót í viðhorfum til umhverfismála. „Hann var ákaflega vinsæll í Brasilíu á þessum tíma og fyrir utan hótelið sem við bjuggum bæði á beið alltaf fjöldi fólks eftir honum," segir frú Vigdís. Eftir að frú Vigdís og Castro höfðu bæði lokið máli sínu gaf Castro sig á tal við hana og Gro Harlem Brundtland. „Hann var glaðhlakkalegur við okkur Gro og bauð okkur að heimsækja sig í sumarfrí á eyju sam hann hafði til ráðstöfunar. Honum fannst það tilkomumikið að við værum forystumenn meðal þjóða okkar og sagðist vilja hag kvenna sem mestan á Kúbu," segir frú Vigdís. Aðspurð segist hún þó ekki hafa þegið boðið. Frú Vigdís segir aðspurð að gaman hafi verið spjalla við Castro, hann hafi vitað upp á hár um sinn styrk. „Hann hafði gríðarlega útgeislun og maður skilur að slíkir menn eigi það til að ná tökum á fólki, fólk heillaðist mjög af honum," segir frú Vigdís. Þetta eru þó ekki einu kynni frú Vigdísar af forsetanum aldna því þegar hún var leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur bárust henni árnaðaróskir frá leiðtoganum um hver áramót. Aðspurð segist frú Vigdís ekki hafa hugmynd um það af hverju hann tók upp á því að senda henni nýárskort. „Þetta voru stuttorð kort með óskum um gleðileg jól og farsælt nýtt ár og svo fylgdi alltaf setningin „This is my brother" og mynd af bróður hans Raúl," segir frú Vigdís.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira