Bankastjóri Kaupþings hefur óskað eftir launalækkun 25. október 2008 03:00
Laun bankastjóra nýja Kaupþings verða lækkuð til samræmis við laun bankastýru nýja Glitnis. Bankastjórinn óskaði sjálfur eftir þessari breytingu. Finnur Sveinbjörnsson, var ráðinn bankastjóri Kaupþings, í síðustu viku og var þá jafnframt tilkynnt að mánaðalaun hans myndu nema einn milljón og níu hundruð og fimmtíu þúsund krónum. Viðskiptaráðherra sem og félagsmálaráðherra gagnrýndu þennan samning og töldu að laun bankastjórans væru of há og alls ekki í samræmi við launastefnu hins opinbera. Til samanburðar má nefna að Birna Einarsdóttir, nýráðinn bankastjóra Nýja Glitnis fær sautjánhundruð og fimmtíu þúsund krónur á mánuði, eða tvö hundruð þúsund krónur minna í laun en Finnur - þrátt fyrir að stýra stærri banka. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Finnur nú óskað eftir því við stjórn Kaupþings að laun hans verði lækkuð um tvö hundruð þúsund krónur til jafns við laun bankastjóra Glitnis. Fastlega er búist við því að bankastjórnin samþykki þá ósk. Í nýju skipuriti sem Kaupþing kynnti í gær kemur ennfremur fram að allir sviðsstjórar hins nýja banka sátu áður í stjórnunarstöðum í gamla bankanum. Aðeins ein kona gegnir starfi sviðsstjóra hjá bankanum en í heild eru þeir níu talsins. Af tuttugu og níu sviðsstjórum hjá hinum nýstofnuðu ríkisbönkum eru aðeins fimm konur. Þetta er nokkuð á skjön við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir að stefnt skuli að því að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og stjórnunarstöðum á vegum ríkisins. Í Markaðnum á Stöð 2 í morgun kom fram að upphaflega stóð til að ráða Kristínu Pétursdóttur, forstjóra Auðar Capital, sem bankastjóra Kaupþings en Kristín hafnaði hins vegar boðinu.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Fleiri fréttir Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Sjá meira