Innlent

Veginum um Súðavíkurhlíð lokað - Varað við miklu hvassviðri á Suðurnesjum

Úr myndasafni.
Úr myndasafni.

Búið er að loka veginum um Súðavíkurhlíð. Vegagerðin varar vegfarendur við miklu hvassviðri á Reykjanesbraut og Suðurnesjum.

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum, í samráði við Veðurstofu Íslands, lýsir yfir viðbúnaði á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Sérstaklega er horft til ástands snjóalaga á Ísafirði, Bolungarvík og við helstu umferðaræðar um Eyrarhlíð, Óshlíð, Kirkjubólshlíð og Súðavíkurhlíð.

Á Ísafirði og í Bolungarvík kom rafmagn á nýjan leik klukkan rúmlega hálf níu í kvöld.




Tengdar fréttir

Rafmagnslaust á norðanverðum Vestfjörðum

Talið er að rafmagnslaust sé á öllum norðanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt upplýsingum Vísis er rafmagnslaust á Ísafirði og í Bolungarvík. Samkvæmt upplýsingum frá Orkubúi Vestfjarða fór rafmagnið af vegna óveðurs.

Varað við slæmu veðri víða um land

Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra býst áfram við slæmu veðri næsta sólarhringinn víða um land og er Veðurstofan enn með viðvörun vegna norðan og norðvestan 20 til 25 metrar á sekúndu yfir Vestfjörðum fram á nótt, suðvestanlands undir kvöld og norðanlands á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×