David Di Michele er leikmaður 5. umferðar - Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. september 2008 15:51 David Di Michele. Nordic Photos / Getty Images
David Di Michele, er leikmaður 5. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar en hann skoraði tvívegis í 3-1 sigri West Ham á Newcastle um helgina. Eins og alltaf eftir hverja umferð í ensku úrvalsdeildinni má sjá samantekt úr hverjum leik og brot af því besta, svo sem leikmaður og lið umferðarinnar og fimm bestu mörkin. Smelltu hér til að sjá yfirlit myndbandanna. Smelltu hér til að sjá myndband af David Di Michele, leikmanni 5. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Di Michele er 32 ára gamall Ítali sem hefur alla sína tíð leikið í heimalandinu þar til hann var lánaður til West Ham nú í haust. Hans fyrsti leikur var í 3-2 tapinu fyrir West Brom um síðustu helgi er hann kom inn á sem varamaður fyrir Dean Ashton sem meiddist. Ashton var enn meiddur um helgina og var því Di Michele í byrjunarliðinu og skoraði sín fyrstu mörk í ensku úrvalsdeildinni og var í kjölfarið valinn besti leikmaður umferðarinnar. Hann lék með Torino í fyrra og skoraði þá sex mörk í 25 leikjum. Áður hafði hann komið víða við, til að mynda í Udinese og Reggina. Di Michele spilaði með Udinese í Meistaradeildinni tímabilið 2005-6 en frægasti leikur hans er líklega bikarleikur gegn Lecce tímabilið á undan. Þá skoraði tvö mörk áður en markvörðurinn Samir Handanovic var rekinn af velli. Di Michele fór þá í markið og varði vítaspyrnu á lokamínútum leiksins sem um leið tryggði Udinese 5-4 sigur í leiknum. Það er þó svartur blettur á hans ferli en hann var dæmdur í þriggja mánaða leikbann í mars í fyrra fyrir að vera uppvís að veðmálabraski. Hann fékk einnig þunga sekt en mátti þó æfa með Torino og spila æfingaleiki. Það var svo Nicklas Bendtner, leikmaður Arsenal, sem þótti skora fallegasta mark umferðarinnar í leik gegn Bolton eins og sjá má hér. Lið umferðarinnar: Markvörður: Craig Gordon, Sunderland Varnarmenn: Andy Griffin, Stoke Leon Cort, Stoke Julien Faubert, West Ham Ruchard Dunne, Manchester City Miðvallarleikmenn: Denilson, Arsenal Ji-Sung Park, Manchester United Shaun-Wright Phillips, Manchester City Sóknarmenn: John Carew, Aston Villa Michael Chopra, Sunderland David de Michele, West Ham
Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira