Enski boltinn

Fowler er í leikmannahópi Cardiff

NordicPhotos/GettyImages

Gamli refurinn Robbie Fowler er í 18 manna hópi Dave Jones fyrir úrslitaleikinn í enska bikarnum gegn Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Portsmouth á morgun.

Fowler, sem gerði garðinn frægan með Liverpool á árum áður, hefur ekki spilað einn einasta leik á árinu 2008 vegna meiðsla á mjöðm. Hann fór í uppskurð og er nú að ná sér.

Það kemur væntanlega ekki í ljós fyrr en á morgun hvort Fowler nær að vinna sér sæti í liðinu fyrir úrslitaleikinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×