Enski boltinn

Park missir af Ólympíuleikunum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Park hefur verið ansi óheppinn með meiðsli síðan hann gekk til liðs við Manchester United.
Park hefur verið ansi óheppinn með meiðsli síðan hann gekk til liðs við Manchester United.

Park Ji-Sung, miðjumaður Manchester United, mun ekki vera með Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum vegna meiðsla á hné. Þessi 27 ára leikmaður átti að vera einn af þremur yfir 23 ára mönnum í hópi Suður Kóreu.

Leikmenn Manchester United eiga að koma aftur til æfinga fyrir næsta tímabil þann 7. júlí og fannst knattspyrnusamband Suður-Kóreu ekki rétt að láta hann spila gegnum þessi meiðsli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×