Enski boltinn

Terry tæpur vegna meiðsla

NordicPhotos/GettyImages

Óvíst þykir hvort miðvörðurinn John Terry geti tekið þátt í æfingaleik Þjóðverja og Englendinga í næstu viku eftir að honum var skipt af velli vegna meiðsla í 3-0 sigri Chelsea á West Brom í dag.

Terry lenti illa í samstuði í síðari hálfleiknum og sagðist hafa fundið sting í fætinum.

Hann var engu að síður valinn í enska landsliðið í kvöld, en læknar Chelsea munu skera úr um heilsu hans á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×