Írski bakvörðurinn Steve Finnan er farinn frá Liverpool en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Espanyol. Finnan er 32 ára en hann hefur leikið með Liverpool síðan 2003.
Finnan hefur leikið í öllum deildum enska boltans og einnig utandeildinni. Espanyol vann Real Valladolid 1-0 í fyrstu umferð spænsku deildarinnar um helgina.