Draumur rættist hjá Redknapp Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2008 17:05 Harry Redknapp lyftir sigurlaununum á loft í dag. Nordic Photos / Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, var vitanlega hæstánægður með sigur sinna manna í ensku bikarkeppninni í dag og tileinkaði sigurinn fjölskyldu sinni. Nwaknwo Kanu skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en Hermann Hreiðarsson og félagar í vörninni hjá Portsmouth stóðu vaktina í vörninni mjög vel. Hermann lék allan leikinn. „Þetta er frábær tilfinning og rættist draumur minn í dag," sagði Redknapp eftir leikinn. Hann hafði aldrei áður komist í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á 40 ára ferli, hvorki sem leikmaður eða knattspyrnustjóri. „Ég er fjölskyldumaður og þetta var allt gert fyrir fjölskylduna. Ég er bara svo ánægður fyrir þeirra hönd og fyrir allra hönd." Hann viðurkenndi þó að það hefði tekið á taugarnar að vera bara með eins marks forystu. „Þeir héldu áfram að ógna og er full ástæða til að hrósa liði Cardiff," sagði hann og var einnig ánægður fyrir hönd markaskorarans Kanu. „Hann fékk frábært tækifæri til að skora skömmu áður en markið kom. Hann skoraði líka í undanúrslitunum og kom svo aftur í dag og skoraði. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd." Portsmouth tryggði sér með sigurinn þátttökurétt í UEFA-bikarkeppninni og sagðist Redknapp hlakka mikið til að taka þátt í henni.
Enski boltinn Mest lesið Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn KR - Sindri 107-102 | Hetjuleg barátta dugði skammt Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira