Björgólfur ætlar ekki að yfirgefa West Ham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2008 12:30 Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon sem nú er horfinn frá West Ham. Nordic Photos / Getty Images
Greinarhöfundur í breska dagblaðinu The Times fullyrðir að Björgólfur Guðmundsson muni ekki yfirgefa West Ham jafnvel þótt að félagið þurfi að borga meira en fimm milljarða króna vegna Tevez-málsins svokallaða. Smelltu hér til að lesa greinina. Þar er fullyrt að ekki sé langt síðan að Björgólfur setti fimm milljarða inn í félagið og að hann muni gera það aftur, sé þörf á því. Farið er yfir sögu Björgólfs frá því að hann kom til sögunnar hjá West Ham. Til að mynda þátt Eggerts Magnússonar sem margir segja að sé ábyrgur fyrir þeirri launastefnu sem myndaðist hjá félaginu sumarið 2007 þegar menn eins og Freddie Ljungberg voru fengnir til félagsins. Carlos Tevez og Javier Mascherano komu til félagsins haustið 2006, nokkrum mánuðum áður en Björgólfur og Eggert keyptu félagið. West Ham var síðar á tímabilinu sektað um 5,5 milljónir punda fyrir að hafa brotið reglur ensku úrvalsdeildarinnar við skráningu leikmanninna. Samningsréttur beggja var í eigu Kia Joorabchian en vegna málsins er nú ólöglegt að félög í deildinni tefli fram leikmönnum sem eru í eigu þriðja aðila. West Ham íhugaði að lögsækja Terence Brown, fyrrverandi stjórnarformann og eiganda félagsins, vegna þessa. Brown var sagt upp störfum og lögsótti hann West Ham vegna þessa. Það mál fór aldrei fyrir rétt þar sem aðilar komust að sátt í málinu áður en kom til þess. En það þýðir að West Ham getur ekki lögsótt Brown vegna nýrra sekta sem West Ham stendur nú frammi fyrir. Í gær var sagt frá því að Sheffield United hafi unnið mál sitt fyrir gerðardómi gegn West Ham. United féll vorið 2007 á meðan að West Ham náði að bjarga sér frá falli. Carlos Tevez þótti gegna lykilhlutverki þegar að félaginu tókst að forðast fallið. Það var Sheffield United ekki sátt við og hóf því málsókn sína fyrir sextán mánuðum síðan. Það fer fram á 5,2 milljarða í skaðabætur en annar gerðardómur verður skipaður til að ákveða viðurlög West Ham.
Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira