Lárus og Þórður hafa unnið tvisvar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2008 07:45 Pétur Pétursson skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Feyenoord á Ajax í bikarúrslitaleiknum í Hollandi 1980.
Íslendingar eiga fulltrúa í bikarúrslitaleiknum í Englandi á morgun og af því tilefni skoðar Fréttablaðið eftirminnilegustu bikarúrslitaleiki íslenskra knattspyrnumanna á erlendri grundu. Hermann Hreiðarsson verður á laugardaginn fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn til þess að spila bikarúrslitaleik á Wembley þegar lið hans Portsmouth mætir Cardiff í FA-bikarnum, elstu keppni í heimi. Hermann er þó ekki fyrsti Íslendingurinn til þess að spila úrslitaleik í ensku bikarkeppninni því Eiður Smári Guðjohnsen var í tapliði Chelsea á móti Arsenal 2002 en leikurinn fór þá fram í Cardiff þar sem verið var að endurbyggja Wembley. Hermann getur þar með komist í hóp þeirra íslenskra knattspyrnumanna sem hafa unnið bikarmeistaratitil erlendis. Albert Guðmundsson varð fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn til þess að leika í bikarúrslitaleik á erlendri grundu þegar hann spilaði til úrslita með liði sínu Racing Club de Paris 14. maí 1950. Albert og félagar urðu að sætta sig við 0-2 tap á móti nágrönnum sínum í Stade de Reims.Meistari í tveimur löndum Lárus Guðmundsson skipar sér í nokkra sérstöðu yfir árangur í bikarkeppnum erlendis og það af fleiri en einni ástæðu. Lárus er sá eini sem hefur unnið bikarinn í tveimur löndum og sá eini sem hefur byrjað inn á í bikarúrslitaleik og unnið bikarinn í einu af stóru löndunum (Englandi, Ítalíu, Spáni, Frakklandi og Þýskalandi). Lárus er líka aðeins einn af fjórum leikmönnum sem hafa náð að skora tvö mörk í bikarúrslitaleik. Lárus Guðmundsson varð fyrst bikarmeistari með Waterschei í Belgíu 1982 þegar hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri á Waregem og aðeins þremur árum seinna vann Lárus bikarinn í Vestur-Þýskalandi með liði sínu Bayer Uerdingen sem vann Bayern München 2-1 í úrslitaleik. Lárus lék vel í leiknum og átti þátt í sigurmarkinu en Uerdingen lenti 0-1 undir.Mark í tveimur úrslitaleikjum Þórður Guðjónsson er eini Íslendingurinn sem hefur skorað í tveimur bikarúrslitaleikjum á erlendri grundu.Mörk í tveimur úrslitaleikjum Þórður Guðjónsson er ásamt Lárusi sá eini sem hefur tvisvar sinnum orðið bikarmeistari erlendis en hann vann belgíska bikarinn tvisvar með Racing Genk, árin 1998 og 2000. Þórður skoraði í báðum bikarúrslitaleikjunum, þar af tvö mörk í seinni leiknum árið 2000. Þórður var valinn besti maður bikarúrslitaleiksins árið 2000 þegar Genk vann 4-1 sigur á Standard Liege. Staðan var 1-1 í hálfleik en Þórður tók yfir leikinn í seinni hálfleik og skoraði þá tvö mörk og lagði upp það þriðja. Þórður hafði einnig skorað eitt mark og lagt upp annað í úrslitaleiknum tveimur árum áður og er því sá eini sem hefur skorað í tveimur úrslitaleikjum. Afrek Péturs Péturssonar frá árinu 1980 er líka með þeim eftirminnilegri en Pétur skoraði þá tvö mörk fyrir Feyenoord í 3-1 sigri á hollensku meisturunum Ajax í bikarúrslitaleiknum sem fram fór á heimavelli Feyenoord. Ajax byrjaði betur, komst í 1-0 og klikkaði síðan á vítaspyrnu. Pétri brást hins vegar ekki bogalistin þegar hann jafnaði leikinn úr vítaspyrnu á 39. mínútu og hann innsiglaði síðan sigurinn með því að skora þriðja markið fimmtán mínútum fyrir leikslok. Helgi Sigurðsson er fjórði íslenski knattspyrnumaðurinn sem hefur skorað tvennu í bikarúrslitaleik en hann skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Stabæk á norsku meisturunum í Rosenborg í framlengdum bikarúrslitaleik árið 1998. Helgi skoraði fyrsta mark leiksins strax á 5. mínútu og innsiglaði síðan sigurinn í framlengingunni.Þórður Guðjónsson og Helgi Sigurðsson hafa báðir skorað tvö mörk í bikarúrslitaleik erlendis.Meðal annarra íslenskra knattspyrnumanna sem hafa orðið bikarmeistarar á erlendri grundu eftir að hafa spilað í sjálfum bikarúrslitaleiknum má nefna: Jóhannes Eðvaldsson (Celtic, Skotlandi 1977), Ásgeir Sigurvinsson (Standard Liege, Belgíu 1981), Arnór Guðjohnsen (Anderlecht, Belgíu 1988), Árna Gaut Arason (Rosenborg, Noregi 1999), Ólaf Örn Bjarnason (Brann, Noregi 2004) og Kára Árnason (Djurgården, Svíþjóð 2005) auk þess sem Guðni Bergsson varð bikarmeistari með Tottenham árið 1991 en fékk þá ekki að spreyta sig í bikarúrslitaleiknum. Stefán Gíslason varð síðasti Íslendingurinn til þess bæði að spila bikarúrslitaleik og að vinna bikarmeistaratitil erlendis þegar hann leiddi Bröndby til sigurs í dönsku bikarkeppnini 1. maí síðastliðinn. Stefán náði því ennfremur að vera fyrsti Íslendingurinn sem tekur á móti bikarnum sem fyrirliði hjá erlendu liði.
Enski boltinn Mest lesið Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn KR - Sindri 107-102 | Hetjuleg barátta dugði skammt Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira