Davíð Þór: Okkar eigin aumingjaskapur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. september 2008 23:46 Davíð Þór Viðarsson, fyriliði FH. Mynd/E. Stefán „
Það þarf eitthvað mikið að gerast til að við tökum þetta af þeim," sagði Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, um titilvonir liðsins eftir að FH tapaði fyrir Fram í kvöld, 4-1. „Við vorum aldrei tilbúnir í þessum leik og við getum engu öðru um kennt heldur en okkar eigin aumingjaskap. Ef það er ekki hægt að koma rétt stemmdur til leiks þegar nokkrar umferðir eru eftir og liðið í bullandi titilbaráttu þá er eitthvað mikið að," sagði Davíð. Fram komst yfir undir lok fyrri hálfleiks með sjálfsmarki FH. „Fram að því voru þeir ekki búnir að skapa sér mikið og mér fannst við vera með ágæt tök á leiknum. Svo ætluðum við að byrja eins og menn í seinni hálfleik en fáum á okkur þrjú mörk á tíu mínútum eins og algerir sauðir. Við vorum ekkert líkir sjálfum okkur í dag og mikil deyfð yfir liðinu." Dómgæslan var umdeild í kvöld en Davíð Þór neitaði að kenna dómurunum um ófarirnar. „Við töpuðum þessum leik sjálfir en það voru vissulega nokkur atriði sem orkuðu tvímælis." Keflavík er nú með átta stiga forystu á FH sem á reyndar leik til góða. Þessi lið mætast á sunnudaginn í Kaplakrika þar sem Keflvíkingum nægir jafntefli til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. „Við verðum að hysja upp buxurnar og vinna þennan leik á sunnudaginn til að halda möguleikum okkar opnum. Við verðum svo að vona að Keflavík misstígi sig gegn Fram í síðustu umferðinni," bætti hann við. FH á inni leik gegn Breiðabliki og mætir Keflavík og Fylki í lokaumferðunum. FH verður að vinna alla þessa leiki og treysta á að Keflavík vinni ekki Fram í lokaumferðinni - og helst tapi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Enski boltinn Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Áfram þrátt fyrir tap í Íslendingaslag Handbolti Uppgjör: Njarðvík - Grindavík 83-72 | Njarðvíkingar sigldu í úrslitaeinvígið Körfubolti Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV 23-25 Valur | Valskonur einum sigri frá Íslandsmeistaratitli Handbolti Hulda: Náðum góðum stoppum og þá kemur sóknin Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Fram - Þróttur 0-3 | Þróttur áfram á sigurbraut en Fram ennþá án stiga Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Sagan segir að KR verði meistari „Sem betur fer slapp þetta“ „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Ísak og Sverrir fengu báðir heilahristing „Ekki í fyrsta sinn sem við komum til baka á þessum velli“ „Eigum að díla betur við svona stöður“ „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ „Erum með montréttinn á Akureyri“ „Gerist eiginlega ekki betra“ Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Þróttur og HK á toppnum Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Sjá meira