Farþegar og áhöfn létust í flugslysi í Kongó 4. október 2007 12:17 Rannsóknarmenn á slysstað Antonov vélar sem fórst í Úganda árið 2005.
Nú er ljóst að þeir 17 manns sem voru um borð í rússnesku fragtflugvélinni sem fórst í úthverfi Kinshasha í Kongó í dag eru látnir. Vélin lenti á fjölda kofa í Kingasani hverfi nálægt Ndjili alþjóðaflugvellinum. Óttast er um líf fjölda manns á jörðu niðri. Vélin var af gerðinni Antonov í eigu kongóska flugfélagsins Africa 1. Slökkvilið átti í erfiðleikum með að komast að slysstaðnum innan um hreysin í hverfinu. Að minnsta kosti fjögur hús standa í ljósum logum auk flugvélarinnar. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna í Kongó sagði fjölda manns hafa látist í slysinu, en nákvæmar tölur um látna hafa ekki enn fengist. Flugslys eru tíð í Kongó. árið 1996 létust að miinnsta kosti 350 manns þegar Antonov-32 vél brotlenti á mannmörgum markaði í miðborg Kinshasa. Vélar í notkun í Kongó eru gamlar og vantar töluvert upp á viðhald þeirra. Þær eru þó oft eina leið til að koma fólki og vörum á milli staða í landinu sem er gríðarstórt og á hægum batavegi eftir borgarastríð sem geisaði frá árinu 1998 til 2003. Átta létust í flugslysi í september þegar fragtvél lenti utan flubrautar í bænum Goma. Kongó er á stærð við vesturhluta Evrópu en hefur einungis nokkur hundruð kílómetra malbikaðra vega. Á síðasta ári var staða flugmála í landinu talin "til skammar" af Alþjóða flugmálasamtökunum. Africa 1 er á svörtum lista flugfélaga í Evrópusambandinu. Öll flugfélög sem uppfylla staðla kongóskra flugmálayfirvalda, nema Hewa Bora flugvélagið, eru bönnuð af sambandinu.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira