Bíða fregna af Kambi á Flateyri 18. maí 2007 12:04
Íbúar Flateyrar bíða nú milli vonar og ótta nánari fregna varðandi framtíð atvinnulífs í bænum, sem væntanlega verður greint frá á starfsmannafundi hjá útverðarfélaginu Kambi síðar í dag. Kambur er langstærsti vinnuveitandi á Flateyri, gerir út fimm báta, þar af tvo stóra línubáta, og rekur umsvifamikla fiskvinnslu í landi. Um það bil 120 manns vinna hjá fyrirtækinu, að lang mestu leyti Pólverjar og svo er hópur Taílendinga. Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir engu breyta hvaðan fólkið sé, þetta séu íbúar bæjarfélagsins. Það sé alvarlegt áfall fyrir atvinnulífið á svæðinu ef kvótinn verði seldur burt og bæjarsjóður hafi ekki bolmagn til að kaupa hann. Helsta vonin sé að fjársterkir einstaklingar á svæðinu kaupi sem mest af honum líkt og gerðist í Bolungarvík nýverið. Hinrik Kristinsson, forstjóri Kambs, sem er fæddur og uppalinn Flateyringur, sagðist í morgun ekkert vilja tjá sig við fjölmiðla fyrr en eftir fund með starfsmönnum Kambs sem hefst klukakn hálf þrjú í dag.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira