Óbreytt fylgi flokkanna myndi bæta hlut kvenna á þingi 4. maí 2007 20:00
Óbreytt fylgi flokkanna frá síðustu kosningum myndi bæta hlut kvenna á þingi um 6%. Sjálfstæðismenn standa sig lakast í uppröðun kvenna á listum. Þetta hefur Jafnréttisstofa reiknað út með því að skoða framboðslista fimm stjórnmálaafla sem buðu einnig fram fyrir fjórum árum eftir kynjum. Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem er nú með jafn margar konur og karla í fyrsta sætinu. Næst á eftir kemur Vinstrihreyfingin - grænt framboð. Þar næst Samfylkingin, svo Frjálslyndi flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn rekur lestina en hjá sjálfstæðismönnum eru 16,6% frambjóðenda í fyrsta sæti konur. Jafnréttisstofa segir athyglisvert að skoða hvernig frambjóðendurnir deilist niður á líkleg þingsæti og varaþingsæti eftir flokkum. Sjálfstæðisflokkurinn sé með jafnmarga af báðum kynjum á framboðslistunum í heild, en dreifing þeirra sé þannig að karlar sitji í öruggum þingsætum á meðan konurnar séu líklegir varaþingmenn. Hinir flokkarnir nái að halda jafnari dreifingu. Eftir síðustu alþingiskosningar minnkaði hlutur kvenna úr 34,9% niður í 30,2% þingmanna, sem varð nokkurt áfall fyrir jafnréttisbaráttuna, segir Jafnréttisstofa. Í lok síðasta kjörtímabils voru þær hinsvegar orðnar 36,5%, sem er hæsta hlutfall kvenna sem verið hefur á Alþingi. Ef flokkarnir fengju nú sama fylgi og síðast yrðu konur á þingi 23 eða 36,5%, sem er sama hlutfall og er í dag. Það er aukning upp á 6,3 prósentustig frá niðurstöðum síðustu kosninga, sem verður að teljast góður árangur, segir Jafnréttisstofa í samantekt sinni um svokallaða jafnréttisvog.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Staðfesta rúmlega áttatíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Sjá meira