Fyrirtæki undir smásjá Neytendasamtakanna til 1. mars 23. janúar 2007 12:08
Dæmi eru um matvörur sem hafa hækkað um þrjátíu og fimm prósent í janúar samkvæmt nýrri verðlagsvakt sem Neytendasamtökin settu upp á heimasíðu sína í gær. Fyrirtæki verða undir smásjá samtakanna segir formaðurinn sem hefur fulla trú á að lækkun virðisaukaskatts fyrsta mars skili sér til fólksins í landinu.Meðal fyrirtækja á listanum hjá Neytendsamtökunum er Nói Síríus sem hækkaði þann fimmtánda janúar verð á Kelloggs morgunkorni og Cadburys sælgæti um 6-15 prósent. Skýringin er sögð gengisbreytingar og erlendar verðhækkanir. Sláturfélag Suðurlands hækkar í janúar verð á kryddi og Barilla pasta um 3-9,7% af sömu ástæðu. Veislubakstur hækkaði flatbrauð, soðbrauð og kökur um 3-35% í janúar. Tuttugu og níu fyrirtæki eru á listanum sem verður haldið úti næstu vikur. Það er mikilvægt fyrir neytendur að fá upplýsingar um verðhækkanir á matvöru, segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, nú í aðdraganda 1. mars. Einnig skipti máli að veita fyrirtækjum aðhald.Dragi fyrirtæki hækkanir til baka verða þau umsvifalaust tekin út af listanum en hann verður uppfærður reglulega. Ef neytendur fá ekki að fylgjast með gætu þau grunað fyrirtæki um að hækka til að geta lækkað fyrsta mars, segir Jóhannes, því er mikilvægt að allt sé uppi á borðinu. Hann hefur hins vegar fulla trú á að lækkun virðisaukaskatts þann 1. mars eigi eftir að skila sér til neytenda enda verði þau undir smásjá samtakanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Innlent Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Innlent Fleiri fréttir Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Sjá meira