Erlent

Ríkisstjórninni enn mótmælt í Líbanon

Stjórnarandstaðan í Líbanon, með Hisbollah í broddi fylkingar, boðar til næsta skrefs í baráttu sinni gegn sitjandi ríkisstjórn. Í næstu viku ætlar stjórnarandstaðan að lama landið með verkföllum og mótmælum, meðal annars með setuverkfalli fyrir utan fjármálaráðuneytið á þriðjudagsmorgun vegna nýrra fjárlaga.

Forseti Alþýðusambands Líbanons hvatti alla verkamenn, námsmenn, atvinnulaus ungmenni, bændur, bílstjóra og aðra sem lifa á lágmarkslaunum að mæta til setuverkfalls klukkan níu á þriðjudagsmorgun.

Nánari útfærsla á mótmælunum verður kynnt á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×