Mörg dæmi um að ríkisstofnanir nýti ónýttar heimildir til skylduverkefna 21. ágúst 2007 15:53 MYND/Vilhelm
Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem svarað er gagnrýni Ríkisendurskoðunar vegna Grímseyjarferjumálsins í dag. Þar er bent á að mörg dæmi séu fyrir því að ríkisstofnanir nýti ónýttar heimildir sínar til að fjármagna kostnað vegna annarra lögbundinna verkefna þegar fyrir liggur lagaheimild til að stofna til kostnaðararins. Ríkisendurskoðun sagði fyrr í dag að það væri afar vafasamt að stofna til hundraða milljóna króna útgjalda í tengslum við Grímseyjarferju á grundvelli þeirrar sölu- og ráðstöfunarheimildar sem getið er í fjárlögum fyrir síðasta ár og þetta ár. Í fjárlögunum hefði komið fram að heimilt væri að selja Sæfara, gömlu Grímseyjarferjuna, og ráðstafa fénu til kaupa á annarrri ferju. Hins vegar sé ekki búið að selja Sæfara enn.Fjármálaráðuneytið segir í tilkynningu að afar takmarkaða sundurliðun sé að finna um einstök verkefni Vegagerðarinnar í fjárlögum ársins. Ítarlega sé hins vegar mælt fyrir um framkvæmdirnar sjálfar og einstök verkefni þeim tengdum í samgönguáætlun sem sé þingsályktun sem líta megi á sem vilja Alþingis í samgöngumálum ríkisins.Fjármálaráðuneytið segir að þegar ákveðið hafi verið að fara í endurnýjun á Grímseyjarferjunni þá hafi verið byrjað á því að afla hefðbundinnar heimildar Alþingis í fjárlögum ársins. Í umræddri heimildagrein hafi verið farið fram á að heimilt yrði „að selja Grímseyjarferjuna M/s Sæfara og ráðstafa andvirðinu til kaupa eða leigu á annarri hentugri ferju."Löng hefð sé fyrir því að litið hafi verið svo á að ekki sé einungis verið að ráðstafa andvirði eldri eignarinnar til kaupanna heldur sé Alþingi jafnframt að veita nauðsynlega lagaheimild til kaupa á nýrri eign í staðinn og greiða nauðsynlegan kostnað sem leiðir af kaupunum.Þá sé augljóst að rökrétt röð framkvæmda í slíkum verkefnum sé fyrst að tryggja eðlilegt framhald þeirrar þjónustu sem verið er að veita áður en tekin er ákvörðun um breytingar, svo sem um sölu á fasteign sem notuð hefur verið til þjónustunnar.Þá segir fjármálaráðuneytið að fjölmörg dæmi séu fyrir því að stofnanir nýti ónýttar heimildir sínar til að fjármagna kostnað vegna annarra lögbundinna verkefna þegar fyrir liggur lagaheimild til að stofna til kostnaðararins. Telja verði að slík lagaheimild hafi klárlega legið fyrir í fjárlögum ársins 2006.„Þegar tekin var ákvörðun um kaup og endurnýjun Grímseyjarferjunnar lá fyrir nýsamþykkt vegaáætlun fyrir árin 2005-2008. Við meðferð málsins á stjórnsýslustigi þótti ekki nauðsynlegt að breyta vegaáætluninni til að fjármagna kaupin, með hliðsjón af framangreindri fjárlagaheimild og þar sem lög um fjárreiður ríkisins þóttu ekki standa í vegi fyrir því að hægt yrði að fjármagna verkefnið þar til ný vegaáætlun kæmi til endurskoðunar að stuttum tíma liðnum. Gert var ráð fyrir að fjármögnun yrði til bráðabirgða af ónýttum heimildum stofnunarinnar en verkefnið yrði síðan endanlega fjármagnað í nýrri Samgönguáætlun. Í þessu sambandi verður að horfa til þess að heildarútgjöld Vegagerðarinnar voru langt innan ramma fjárheimilda og ónýttar fjárheimildir þar með mun hærri en sem nemur kostnaðaráætlun vegna þessa tiltekna verkefnis," segir í tilkynningu ráðuneytisins.Vísar ráðuneytið enn fremur til Í 37. greinar fjárreiðulaga þar sem finna megi ákvæði sem hafa það að markmiði að auka sveigjanleika stofnana til ráðstöfunar fjármuna. Þannig sé heimilað að flytja fjárheimildir milli einstakra rekstarverkefna enda séu þau skilgreind í fjárlögum.„Með hliðsjón af þessu og heimildar í 6. gr. fjárlaga telur ráðuneytið að svo langt sem fjárreiðulögin ná, hafi ákvörðun um að heimila Vegagerðinni að nýta tímabundið ónotaðar lögákveðnar heimildir verið innan þess ramma sem fjárreiðulög setja," segir að endingu í tilkynningunni.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Fleiri fréttir Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Sjá meira