Innlent

Víða vatnavextir vegna hlýinda

Víða eru talsverðir vatnavextir vegna hlýinda og rigningar en vatnsflaumur hefur þó ekki valdið tjóni, svo vitað sé. Spáð er allt að níu stiga hita í dag og að hiti verði um sex stig um helgina þannig að ár og lækir gætu bólgnað.

Á sléttlendi hafa víða myndast stórar tjarnir og sums staðar er eins og yfir stöðuvötn að líta því frost er í jörðu sem kemur í veg fyrir að vatnið sjatni ofan í jarðveginn. Þá hefur hálku verið að taka upp af vegum og er hún horfin á láglendi en hálkublettir eru sumstaðar enn á fjallveglum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×