Sértekjur Háskólans um 40% af tekjum 8. júlí 2007 09:00 Kristín Ingólfsdóttir
Sértekjur Háskóla Íslands (HÍ) jukust verulega á síðasta ári og eru nú um 40 prósent tekna skólans. Hlutfallið hefur hækkað á milli ára, en árið 2005 voru sértekjurnar 34 prósent tekna skólans. Þeta kemur fram í Árbók skólans, sem kynnt var á ársfundi á fimmtudag. Með sértekjum er átt við tekjur aðrar en fjárveitingar frá ríkinu, segir Kristín Ingólfsdóttir rektor. Þar er einkum um að ræða tekjur sem vísindamenn afla með sókn í erlenda og innlenda samkeppnissjóði, tekjur frá Happdrætti HÍ og styrki frá atvinnulífinu. Framlag ríkisins til HÍ var um 5 milljarðar á síðasta ári, sem er um 7 prósenta aukning milli ára. Á sama tíma hækkuðu sértekjurnar um rösklega 36 prósent og voru 3,3 milljarðar á árinu 2006. Fram kemur í tilkynningu frá HÍ að þrír fjórðu hlutar heildarútgjalda hafi runnið til kennslu og rannsókna, 17 prósent til reksturs og framkvæmda og 7 prósent hafi farið í stjórnsýsluna. Á ársfundinum ræddi Kristín það markmið HÍ að komast í hóp 100 bestu háskóla í heimi. Hún segir að þegar hafi verið stigin mikilvæg skref, ekki síst sú endurskipulagning á deildum skólans sem nú standi yfir. Einnig hafi styrkir til handa doktorsnemum margfaldast, birtingar greina í ritstýrðum vísindatímaritum hafi aukist um 17 prósent milli ára og tengsl HÍ við atvinnulífið séu sífellt að aukast.
Mest lesið „Trúið ekki þessari áróðursvél“ Erlent Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Innlent Þvag, saur og uppköst í klefum Innlent „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fulltrúi ICE skaut konu til bana í Minneapolis Erlent Allra augu á Íslandi og Atlantshafinu Erlent Íslenskur fjárfestir í óvenjulegri skilnaðardeilu í Bretlandi Innlent Án leyfis en titlar sig enn sem lækni Innlent Mikill viðbúnaður á Kringlumýrarbraut Innlent Fleiri fréttir „Málið er að ástandið fer versnandi“ Ekið inn í verslun og á ljósastaur Þvag, saur og uppköst í klefum Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Símabann skilað góðum árangri þó sumir stelist í símann „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Hildur hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin Rússneskt skip í íslenskri lögsögu og nemendur eiga erfitt með símabann Kleip og sparkaði í fjölda lögreglumanna og látin dúsa í einangrun mánuðum saman Árekstur á Álftanesvegi Tvennu vísað úr landi Munu skoða hvort tilefni sé til að hægja á inntöku nýrra barna Útlendingastofnun tilkynnir starfsmanninn til lögreglu Hægt að skíða í Ártúnsbrekku síðar í dag Börnin verði heima einn og hálfan dag í viku Mikill áhugi á fyrsta sæti hjá Viðreisn Stefán vill verða varaformaður Vara við norðaustan hríð á sunnanverðu landinu Jónas Már vill leiða Samfylkingu í Kópavogi Tuddi hlaut dóm fyrir að níðast á nautgripum sínum Björg blandar sér í oddvitaslaginn í borginni Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja bandaríska fánann á Grænland Eldur kveiktur í lyftu Segir skynsamlegt að anda með nefinu varðandi Grænland Sami oddviti í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár Skautasvell á Stokkseyri slær í gegn Vill lækka veikindahlutfall opinberra starfsmanna Týnda göngufólkið reyndist vera í Reykjavík Engir símar á neyðarfundi og ráðherrar bregðast við skaupinu Hildur Björnsdóttir óskoraður oddviti í Reykjavík Sjá meira