Mýrin fékk aðalverðlaunin 8. júlí 2007 08:15
Kvikmyndin Mýrin eftir Baltasar Kormák hlaut Crystal Globe Grand Prix verðlaunin á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi í gærkvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk mynd vinnur aðalverðlaun á hátíð úr svokölluðum A-flokki kvikmyndahátíða. „Ég átti ekki von á þessu,“ segir Baltasar Kormákur. Hann og kona hans, Lilja Pálmadóttir, framleiðandi myndarinnar, tóku við verðlaununum úr höndum leikarans Danny DeVito. „Ég var á Pollamótinu á Akureyri þegar var hringt í mig og ég dreif mig upp í vél,“ segir Baltasar. „Maður verður að sýna þá virðingu að taka á móti þessu.“ Meðal þeirra mynda sem kepptu við Mýrina um verðlaunin voru nýjar myndir leikstjóranna Jan Sverák, sem fékk Óskarsverðlaun fyrir Kolya, bestu erlendu mynd ársins 1997, og Ferzans Ozpetek, sem leikstýrði meðal annars kvikmyndinni Hamam. Mýrin, sem ber heitið Jar City á ensku, fékk einnig verðlaun samtaka kvikmyndaklúbba, en þau eru minni verðlaun sem veitt eru á hátíðinni. „Eftir fyrstu sýninguna fór umtalið eins og eldur í sinu og það var troðið á báðum sýningunum, fólk þurfti að sitja á gólfinu,“ segir Baltasar. Baltasar segist hafa fengið bréf frá framleiðendum kvikmyndarinnar A History of Violence, þar sem þeir óskuðu eftir að fá réttinn til að endurgera Mýrina á ensku. Mýrin var ekki eina framlag Íslendinga á hátíðinni en kvikmyndirnar Börn og Foreldrar eftir Ragnar Bragason voru sýndar. Verðlaunaféð er 20.000 dalir og deilist það á leikstjóra og framleiðendur myndarinnar. Meðal annarra kvikmynda sem hafa unnið kristalskúluna eru Amelie, kvikmynd franska leikstjórans Jean-Pierre Jeunet, og Ma vie en rose, í leikstjórn Alain Berliner. Baltasar segist munu senda Mýrina á fleiri kvikmyndahátíðir. „Þetta er bara rétt að byrja,“ segir leikstjórinn.
Mest lesið Tvö hundruð manns bjargað af þjóðvegi 1 Innlent Atvinnulífið misnoti heilbrigðiskerfið Innlent Bandaríkin áður mun öflugri á Grænlandi Erlent Ragnar Þór verður ráðherra Innlent Þessi sóttu um hjá Höllu Innlent Telur að Evrópa myndi fórna Grænlandi fyrir NATÓ Erlent Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Erlent Guðmundur Ingi segir af sér Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Leita að manneskju við Sjáland Innlent Fleiri fréttir Atvinnulífið misnoti heilbrigðiskerfið Tvö hundruð manns bjargað af þjóðvegi 1 Leita að manneskju við Sjáland Ragnar Þór verður ráðherra Guðmundur Ingi segir af sér Telur ólíklegt að aðrar þjóðir berjist með Dönum Hátt í hundrað á fjöldahjálparstöð Bæjarfulltrúar slást um oddvitasætið í Hafnarfirði Ekki fengið kvartanir um Grok-myndir af íslenskum konum Neyðarástand í uppsiglingu takist ekki að fjölga sjúkraliðum Mistök ollu því að sumir fengu ekki boð Þessi sóttu um hjá Höllu Kynferðisbrot gegn dreng í Hafnarfirði komið til saksóknara Ungt barn með mislinga á Landspítalanum Halda í opinbera heimsókn til Eyja Ekki komið til héraðssaksóknara Gjaldskylduskógurinn verði grisjaður Stormur í aðsigi: Ræða sviptingar í alþjóðastjórnmálum í pallborði Sex á slysadeild og bílarnir óökufærir Leigubílstjóri sem keypti vændi fær ekki að starfa áfram Meðalaldur hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ljósmæðra heldur áfram að hækka „Málið er að ástandið fer versnandi“ Ekið inn í verslun og á ljósastaur Þvag, saur og uppköst í klefum Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Símabann skilað góðum árangri þó sumir stelist í símann „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Hildur hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin Rússneskt skip í íslenskri lögsögu og nemendur eiga erfitt með símabann Kleip og sparkaði í fjölda lögreglumanna og látin dúsa í einangrun mánuðum saman Sjá meira