Innlent

Mýrin fékk aðalverðlaunin

Kvikmyndin Mýrin eftir Baltasar Kormák hlaut Crystal Globe Grand Prix verðlaunin á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi í gærkvöld.

Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk mynd vinnur aðalverðlaun á hátíð úr svokölluðum A-flokki kvikmyndahátíða.

„Ég átti ekki von á þessu,“ segir Baltasar Kormákur. Hann og kona hans, Lilja Pálmadóttir, framleiðandi myndarinnar, tóku við verðlaununum úr höndum leikarans Danny DeVito.

„Ég var á Pollamótinu á Akureyri þegar var hringt í mig og ég dreif mig upp í vél,“ segir Baltasar. „Maður verður að sýna þá virðingu að taka á móti þessu.“

Meðal þeirra mynda sem kepptu við Mýrina um verðlaunin voru nýjar myndir leikstjóranna Jan Sverák, sem fékk Óskarsverðlaun fyrir Kolya, bestu erlendu mynd ársins 1997, og Ferzans Ozpetek, sem leikstýrði meðal annars kvikmyndinni Hamam.

Mýrin, sem ber heitið Jar City á ensku, fékk einnig verðlaun samtaka kvikmyndaklúbba, en þau eru minni verðlaun sem veitt eru á hátíðinni.

„Eftir fyrstu sýninguna fór umtalið eins og eldur í sinu og það var troðið á báðum sýningunum, fólk þurfti að sitja á gólfinu,“ segir Baltasar.

Baltasar segist hafa fengið bréf frá framleiðendum kvikmyndarinnar A History of Violence, þar sem þeir óskuðu eftir að fá réttinn til að endurgera Mýrina á ensku.

Mýrin var ekki eina framlag Íslendinga á hátíðinni en kvikmyndirnar Börn og Foreldrar eftir Ragnar Bragason voru sýndar.

Verðlaunaféð er 20.000 dalir og deilist það á leikstjóra og framleiðendur myndarinnar. Meðal annarra kvikmynda sem hafa unnið kristalskúluna eru Amelie, kvikmynd franska leikstjórans Jean-Pierre Jeunet, og Ma vie en rose, í leikstjórn Alain Berliner.

Baltasar segist munu senda Mýrina á fleiri kvikmyndahátíðir. „Þetta er bara rétt að byrja,“ segir leikstjórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×