Erlent

Blair styður Jowell

Tessa Jowell
Tessa Jowell MNYD/AP
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti í dag yfir stuðningi við Tessu Jowell, menningarmálaráðherra, og sagði hana ekkert hafa gert sem bryti í bága við siðareglur ráðherra í bresku ríkisstjórninni. Jowell hefur legið undir miklu ámæli eftir að ítalskir saksóknarar sökuðu eiginmann hennar um að þiggja jafnvirði tæpra fjörtíu milljóna íslenskra króna í mútugreiðslur Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. Jowell hefur ávallt haldið því fram að hún hafi ekki vitað um greiðslurnar og því hafi hún ekki getað sagt frá þeim. Þrátt fyrir stuðning Blair segir BBC að margir samflokksmenn Jowell séu þeirrar skoðunar að henni beri að segja af sér embætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×