Fótbolti

Tottenham leiðir í hálfleik

Dimitar Berbatov skoraði gegn sínum gömlu félögum í Leverkusen
Dimitar Berbatov skoraði gegn sínum gömlu félögum í Leverkusen NordicPhotos/GettyImages

Tottenham hefur yfir 1-0 gegn Bayer Leverkusen þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í Evrópukeppni félagsliða í Þýskalandi. Það var fyrrum leikmaður Leverkusen, Búlgarinn Dimitar Berbatov, sem skoraði mark gestanna skömmu fyrir leikhlé. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og á VefTV hér á Vísi.

Þegar skammt er til hálfleiks er staðan í leik Feyenoord og Blackburn jöfn 0-0 og staðan er 1-1 í leik Newcastle og Celta Vigo á St. James Park. Sá leikur fer fram í H-riðli keppninnar þar sem Fenerbahce vann öruggan 3-0 sigur á Palermo fyrr í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×