Hvað segja menn núna Sven? 1. júlí 2006 20:00 ,,
Þeir börðust vel 10, en við töpuðum leiknum og það er sárt'' sagði Sven Göran í viðtali áðan, skiljanlegt, en hvernig hefði verið að spila betur 11? Það er ljóst, Englendingar fara heim, Portúgal áfram, að mörgu leyti óverðskuldað, sýndu ekkert umfram Englendinga í kvöld, nema að þeir eru betri í vítakeppni. Rauða spjaldið á Rooney var harður dómur, engin spurning, tveggja fóta tælkling í seinni hálfleik var um margt harður dómur, hefði hæglega getað verið gult miðað við tveggja fóta tæklingu Portúgala í fyrri hálfleik. En er þetta skýringin? Þegar Englendingar voru jafn margir, gerðu þeir ekkert meira en venjulega, sem minnst, spiluðu frábæra vörn en sóknarleikurinn dapur, en var það taktíkin að sögn þjálfarans, Svens sænska. Hvað lagði hann þá upp í lokin, fyrst vítakeppnin var Englendinga eina von? Ricardo markmaður andstæðinganna er frægur fyrir að verja víti, skora reyndar sjálfur úr þeim líka líktog á EM fyrir tveimur árum. Þetta var endurtekið efni, Portúgalarnir frekar öruggir, þótt þeir brenndu af líka, en Englendingarnir hrein hörmung, alger skandall, ótrúlegt að þeir hafi æft vítaspyrnur jafn slappt og þetta var. Þessi kveðjusöngur Svens var einsog vonir stóðu til, lágstemd lag, undirleikur á falskt harmóníum í íslenskri sveitakirkju, og söngurinn í rangri tóntegund. Það er ekki hægt annað en að finna til með enska liðinu, það eru skelfileg vonbrigði fyrir alla að detta út þegar svona langt er komið í keppninni, en Portúgal er ekki sérlega spennandi kostur, nema ef vera skildi að Deco komi aftur með svolitlum glamúr! Góði guð, gefðu að Frakkar og Brassar verði flottur leikur, jafnvel að Frakkarnir vinni og þá verður gaman í undanúrslitum á þriðjudaginn. Rónaldó getur hinsvegar strax sett: Til leigu skilti í stofugluggann á húsinu sínu í Manchester, sá á ekki auðfúsugestur í þeirri sveit.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Staðfestir eina breytingu á byrjunarliðinu í leiknum á morgun Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: England - Holland | Enskir Evrópumeistarar þurfa sigur Lyon heldur sæti sínu í deildinni eftir allt saman EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan „Vissulega eru það vonbrigði“ „Þetta er það sem að mann dreymdi um“ „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Staðfestir eina breytingu á byrjunarliðinu í leiknum á morgun Svona var blaðamannafundurinn fyrir leikinn gegn Noregi Sláandi tölfræði Sveindísar: Eitt skot á markið á 419 mínútum á EM „Að hlusta á ræður hjá henni gefur mér enn gæsahúð“ Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fagnaði ekki mörkunum tveimur gegn uppeldisfélaginu Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Pedro skaut Chelsea í úrslitin Uppgjörið: Egnatia - Breiðablik 1-0 | Grátlegt tap í Albaníu Fyrrum leikmaður United til liðs við Arsenal Óska eftir að að fyrsta leik deildarinnar verði frestað Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“ Svíþjóð örugglega áfram í átta liða úrslit Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna EM í dag: Nótt á spítala, hræddir blaðamenn og nammi frá Betu FIFA opnar skrifstofu í Trump turni Þjóðverjar völtuðu yfir Dani í seinni hálfleik Lentu í rútuslysi og æfingu aflýst Everton búið að finna sinn Peter Crouch „Þú ert ekki tilbúinn fyrir Ásdísi Halldórsdóttur“ Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Sjá meira