Fótbolti

Hvað nú, mein herr?

"The world cup magic is back'' sagði Blatter blessaður í viðtali í gær, foringi FIFA er ánægður með mótið fram til þessa, og réttilega. Ég er ennþá þeirrar skoðunar að úrslitaleikurinn á HM sé í dag, klukkan þrjú, Argentína og Þýskaland eru þau tvö lið sem hafa sýnt jafnbestu tilþrifin til þessa, sagan segir reyndar að það sé engin trygging fyrir titlinum sjálfum.

Kostulegt að hlusta á sænska sjarmatröllið Sven segja í fjölmiðlum í dag, að hann leggi meðvitað upp með að láta enska spila leiðinlegan en áhrifaríkan fótbolta. Leikurinn í dag hefur hinsvegar alla burði til að komast á spjöld sögunnar, 4-3 væru óskatölur, en hann gæti á hinn bóginn farið 1-1, eða 0-0 og vítaspyrnukeppni. Besta 0-0 jafntefli sem ég hef séð var leikur Argentínu og Hollands, ekki mikið um færi svosem, en það fór ekki á milli mála að þarna voru tvö frábær fótboltalið, sérstaklega voru Argentínumennirnir stórfenglegir, góð vörn, góð miðja, góðir sóknarmenn.

Sá gamli hundur, Lothar Matthaus er bjartsýnn, fyrir hönd andstæðinga eigin liðs, "alltaf verið þeirrar skoðunnar að Argentínumenn vinni þetta'' sagði hann í viðtali í morgun. Þvílíkur gleðigjafi, alltaf á móti öllu. Það hefur verið gaman að sjá sjálfstraustið í þýska liðinu, allir í stuði nema Khan, þannig að útfrá leikgleði, hungri í árangur, og tærum hæfileikum, eiga þessi tvö lið alla möguleika á sigri. Það væri skemmtilegast fyrir keppnina sjálfa, ef Þjóðverjar kæmust alla leið í úrslitaleikinn, þarf þó ekki að vera, argentínsku áhorfendurnir væru velkomnir aftur á leikvanginn í Berlín 9.júlí, slíkur sem ákafinn og söngurinn er í þeirra flokki, bestu áhorfendur í heimi, og þá væru Brassarnir trúlega bestir á móti þeim. Skiptir annars ekki öllu máli, á HM vinnur að lokum liðið sem hefur sigrað í flestum leikjum, sögubókin um keppnina verður þá bara stutt, með fáum myndum, ef tilþrifin hafa verið lítil eða alls engin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×