Öskrandi fjör útá götu 10. júní 2006 13:29
Gott kvöld, góðir gestir, þvílíkur opnunarleikur á HM, 4-2, og að sitja í þessum helgidómi, á nýja Munchenarvellinum, fánar í regnbogans litum, innfluttur amerískur bjór sem allir Þjóðverjar bölvuðu, en frábær fótbolti. Stuðningsmenn Kosta Ríka voru einsog arineldur í einu horni vallarins, allir í rauðu: Olé, Olé, Tigo, Tigo, stundum jafnvel háværari en þýsku áhorfendurnir, en þegar fyrsta markið kom eftir fáeinar mínútur, sprakk allt í loft upp. Stemningin var jafn steindauð, þegar Kosta Ríka jafnaði, líktog einhver sem var nákominn þýska liðinu hefði dáið langt fyrir aldur fram. Næstum þögn. En jafnvel þótt Þjóðverjarnir hefðu getað leikið betur, sérstakleg aí vörninni, og Jens Lehmann, guð minn góður, tvö skot, tvo mörk, þá var þetta fín byrjun. Þeir eru með frábæra miðju og svo Klose, sem virðist geta klárað hvaða færi sem er. Ég hef líka gaman af Jurgen Klinsmann þjálfara, frábær sóknarmaður sjálfur og hann leyfir sér að koma með stemningu og lífsgleði í þýska liðið, hefur ekki veitt af. Nú er kvöld í stóru borginni, stærsta sveitaþorpi í heimi segja margir heimamenn, en samt er öskrandi fjör útá götu, nýárskvöld, gott ef ekki, einn sigur í höfn, þrjú stig takk. Veit ekki með Pólverja, sat við hliðina á pólskum blaðamanni á leiknum í dag, Thomasi Wlodarczyk, hann hefur jafnvel minni trú á sínum mönnum en ég, tveir góðir leikmenn í liðinu, kannski þrír og tapið í kvöld sýnir að þeir eru ekki á leiðinni eitt eða neitt. ,,40% líkur á því að þeir vinni Þjóðverja'' sagði hann, jafnvel minna, bætti ég við, en í kvöld eru aðeins þrír litir í regnboganum í Bæjaralandi, Svart, hvítt og rautt, þýskt, já takk, þeir eiga heiminn næstu klukkutímana, svo á morgun: Nýr HM dagur, þar sem allt getur gerst.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Fleiri fréttir Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Hefja viðræður um kaup á Tonali Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sjá meira