Hvað nú, mein herr? 30. júní 2006 11:25 "
The world cup magic is back'' sagði Blatter blessaður í viðtali í gær, foringi FIFA er ánægður með mótið fram til þessa, og réttilega. Ég er ennþá þeirrar skoðunar að úrslitaleikurinn á HM sé í dag, klukkan þrjú, Argentína og Þýskaland eru þau tvö lið sem hafa sýnt jafnbestu tilþrifin til þessa, sagan segir reyndar að það sé engin trygging fyrir titlinum sjálfum. Kostulegt að hlusta á sænska sjarmatröllið Sven segja í fjölmiðlum í dag, að hann leggi meðvitað upp með að láta enska spila leiðinlegan en áhrifaríkan fótbolta. Leikurinn í dag hefur hinsvegar alla burði til að komast á spjöld sögunnar, 4-3 væru óskatölur, en hann gæti á hinn bóginn farið 1-1, eða 0-0 og vítaspyrnukeppni. Besta 0-0 jafntefli sem ég hef séð var leikur Argentínu og Hollands, ekki mikið um færi svosem, en það fór ekki á milli mála að þarna voru tvö frábær fótboltalið, sérstaklega voru Argentínumennirnir stórfenglegir, góð vörn, góð miðja, góðir sóknarmenn. Sá gamli hundur, Lothar Matthaus er bjartsýnn, fyrir hönd andstæðinga eigin liðs, "alltaf verið þeirrar skoðunnar að Argentínumenn vinni þetta'' sagði hann í viðtali í morgun. Þvílíkur gleðigjafi, alltaf á móti öllu. Það hefur verið gaman að sjá sjálfstraustið í þýska liðinu, allir í stuði nema Khan, þannig að útfrá leikgleði, hungri í árangur, og tærum hæfileikum, eiga þessi tvö lið alla möguleika á sigri. Það væri skemmtilegast fyrir keppnina sjálfa, ef Þjóðverjar kæmust alla leið í úrslitaleikinn, þarf þó ekki að vera, argentínsku áhorfendurnir væru velkomnir aftur á leikvanginn í Berlín 9.júlí, slíkur sem ákafinn og söngurinn er í þeirra flokki, bestu áhorfendur í heimi, og þá væru Brassarnir trúlega bestir á móti þeim. Skiptir annars ekki öllu máli, á HM vinnur að lokum liðið sem hefur sigrað í flestum leikjum, sögubókin um keppnina verður þá bara stutt, með fáum myndum, ef tilþrifin hafa verið lítil eða alls engin.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Fótbolti Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Sjá meira