Lífið

Eitthvað pólskt fyrir alla

Anna Wojtynska og Marta Macuga Segja tíma kominn til að vekja athygli á framlagi Pólverja og veru þeirra hér á landi.
Anna Wojtynska og Marta Macuga Segja tíma kominn til að vekja athygli á framlagi Pólverja og veru þeirra hér á landi. MYND/Vilhelm

Pólverjar eru stærsti innflytjendahópurinn á Íslandi og tvær hugsjónakonur ákváðu að tími væri kominn til þess að kynna menningu Póllands betur hér á landi.

Í næstu viku verður haldin fjölbreytt pólsk menningarhátíð í Reykjavík þar sem pólskt listafólk úr öllum menningargeirum mun stíga á stokk og kynna starf sitt og heimaland. Skipulagning hátíðarinnar er í höndum Mörtu Macuga og Önnu Wojtynska sem láta nú draum sinn rætast en hugmyndin er búin að vera í gerjun býsna lengi.

Við byrjuðum að skipuleggja hátíðina fyrir tveimur árum. Okkur fannst tími til kominn að kynna Íslendingum pólska menningu, Pólverjar eru til dæmis stærsti innflytjendahópurinn á Íslandi, útskýrir Marta. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni eru um 300 Pólverjar búsettir hér á landi en Marta bendir á að þeir séu mun fleiri eftir að opnað var fyrir frjálst flæði vinnuafls um Evrópska efnahagssvæðið í vor. Pólverjar hafa sig ekki mikið í frammi, margir sem koma hingað eru í erfiðri líkamlegri vinnu og hafa lítinn tíma fyrir nýjan kunningsskap eða félagslíf. Við vildum taka málin í okkar eigin hendur og gera eitthvað til þess að vekja athygli á framlagi þeirra og veru hér á landi.

Dagskráin hefst næstkomandi fimmtudag en von er á fjölmörgum góðum gestum frá Póllandi auk þess sem pólskir listamenn hérlendis munu gleðja gesti hátíðarinnar. Fyrsti viðburðurinn verður opnun á listasýningu eftir Ireneusz Jankous, segir Marta, hann er algjör elska og málar fallegar myndir innblásnar af Póllandi. Hann er ekki menntaður málari heldur vinnur hann í byggingarvinnu og málar í frístundum sínum. Verk Jankous verða til sýnis á Kaffi Kúltúr við Hverfisgötu en sýningin er sett upp í samstarfi við Alþjóðahúsið.

Síðan verður athöfn í Háskólabíói þar sem forseti Íslands opnar hátíðina og í kjölfarið leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn pólska tónskáldsins Krzysztofs Penderecki. Sinfónían hefur stutt vel við bakið á okkur en Penderecki er eitt þekktasta pólska tónskáld samtímans. Hann mun stýra sveitinni í flutningi á tveimur af verkum hans.

Flestar listgreinar fá sitt rými á hátíðinni; auk tónlistar og myndlistar koma bókmenntir við sögu því pólski rithöfundurinn Olga Tokarczuk verður gestur hátíðarinnar en sérstök dagskrá verður haldin henni til heiðurs næstkomandi mánudag þar sem rithöfundurinn Sjón mun kynna hana og verk hennar fyrir íslenskum áheyrendum.

Á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins mun látbragðsleikarinn Ireneusz Krosny sýna verk sitt One Mime Theatre. Látbragðsleikur er mjög tengdur Póllandi og þessi magnaði listamaður er einn af þeim snjöllustu. Hann verður með þrjár sýningar í Þjóðleikhúsinu sem er skemmtun fyrir alla aldurshópa sem allir skilja því vitanlega er ekkert talað í sýningunni, segir Marta. Kvikmyndalistinni verður einnig sinnt því í von er á listaparinu Dorotu Kedzierzawska og Arthur Reinhart með milligöngu kvikmyndahátíðarinnar RIFF en mynd Kedzierzawska Ég er verður sýnd á hátíðinni.

Rúmlega þrjátíu gestir koma frá Póllandi; auk listamannanna koma háskólanemar frá Varsjá sem ætla að fræða áhugasama um menningu og pólska tungu og efna til pólsks diskóteks á Nasa. Pólsk nýlist og ljósmyndun fær sinn sess og tónlistin vitanlega einnig. Það eru fjölmargir pólskir tónlistarmenn búsettir hér á landi, útskýrir Marta en á sunnudaginn verða sérstakir minningartónleikar um einn þeirra, fiðluleikarann og tónskáldið Szymon Kuran.

Pólskur djass og flautumúsík munu hljóma en söngkonan Magga Stína mun líka veita liðsinni sitt og flytja þekkt pólsk lög með enskum og íslenskum texta.

Marta útskýrir að hátíðinni sé ætlað að efla samvinnu og skilning en viðburðir sem þessir virki auðvitað í báðar áttir. Það kom mér á óvart hversu mikið Íslendingar vita um Pólland og það hefur auðvitað verið mjög hjálplegt. Þetta er frábært tækifæri til að efla samskipti og því má ekki gleyma að íslensk menning er mjög áhugaverð í augum Pólverja og samskiptin ganga í báðar áttir.

Ég veit ekki hvort þetta verður árlegur viðburður, þessi skipulagning tók tvö ár en við höfum áætlanir fyrir næsta ár. Kannski gerum við eitthvað aðeins minna næst. Ég held að við stefnum meira á ólympískt fyrirkomulag og kannski hátíð á fjögurra ára fresti, segir Marta hlæjandi að lokum.

Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á heimasíðunni www.polska.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.