Sport

Gummi Ben áfram með Val

Guðmundur í leik með Val sl. sumar.
Guðmundur í leik með Val sl. sumar.

Guðmundur Benediktsson, miðju og sóknarmaður hjá Landsbankadeildarliði Vals í knattspyrnu ætlar að freista þess að leika áfram með Hlíðarendaliðinu í sumar. Óvíst hefur verið með hvort Guðmundur myndi hætta knattspyrnuiðkun vegna erfiðra meiðsla sem hafa hrjáð hann í mörg ár en þessi ógnarsnjalli framherji er aðeins 31 árs.

Guðmundur segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að hann hafi undanfarnar vikur verið að meta stöðu sína hvað varðar hans líkamlega ástand. "Niðurstaðan er sú að ég ætla að halda áfram. Ég ætla að sjá hvort ég geti ekki gert eitthvert gagn þó svo ég geti aldrei lofað einu né neinu með minn líkama." sagði Guðmundur sem lék alla leikina 18 með Val í Landsbankadeildinni sl. sumar og var lykilmaður í liðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×