Stór Kaka 14. júní 2006 00:15
Stórleikir dagsins voru kannski ekki eins stórir og vonir stóðu til, sérstaklega ekki leikur Frakka og Svisslendinga, sem varla var betri en þáttur af Neighbours. Brassarnir voru sterkir á móti Króatíu, svo sannarlega, en ekkert sérstakir samt, og Rónaldó er einsog stytta eftir Bertel Thorvaldsen í framlínunni. Hann myndi ekki hreyfast þótt það kæmi jarðskjálfti, sjö á Ricther. Króatarnir voru fínir, áttu fullt af hálffærum og hefðu átt skilið að jafna, en svona er þetta, meistaralið eiga inni meistaraheppni, spurning bara hvort hún dugar Brössunum alla leið. Markið sem Kaka leikmaður AC Milan skoraði undir lok fyrri hálfleiks, fer í sögubækur, hreint ótrúlega yfirvegaður leikmaður, skotið hnitmiðað, í hornið fjær, einfalt, stílhreint, og hann einn besti maður liðsins, kannski sá eini sem stóð undir þessum geggjuðu kröfum sem gerðar eru til drengjanna í gulu peysunum. Skemmtilegasta atvik dagsins, var að hitta Georg, Brasilíumann sem býr í Kópavoginum og hefur verið á Íslandi í átta ár. Við sendum myndatökumann heim til hans til að taka myndir í stuðningsmannapartíi Brasilíu í Hlíðarsmáranum. Það var ótrúlegt að sjá í stofunni fólk á öllum aldri, konur, karla, lítil börn, einfaldlega heimsmynd af HM, fótbolti er fyrir alla, og Georg sjálfur ótrúlega heillandi og skemmtilegur maður. Hann lofar að verða sérfræðingur í 442 svo lengi sem Brassarnir eru með, það eru forréttindi að fá þannig að sjá, að fótbolti er bara einn og einn leikur á Laugardalsvelli, heldur fjölskylduáhugamál, þjóðarréttur í Brasilíu. Sjáum hvað þeir fara langt, blaðamenn í Munchen spáðu Ítölum sigri, eða, eða, eða, þetta veit ekki nokkur maður, en það er einmitt það sem er svo heillandi við þetta blessaða HM.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Sjá meira