Hugsar ekki um markametið 22. maí 2005 00:01 "
Já, ég fann mig ágætlega og nýtti færin," sagði Tryggvi Guðmundsson, hógværðin uppmáluð í samtalið við Fréttablaðið eftir að hafa skorað þrennu gegn Grindvíkingum í Landsbankadeildinni í gær. Tryggvi hefur heldur betur stimplað sig inn í mótið í ár, er kominn með fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjunum og þau þrjú sem komu í gær voru hvert öðru glæsilegra. "Boltinn fór nákvæmlega þangað sem hann átti að fara," sagði Tryggvi um fyrsta markið sem kom beint úr aukaspyrnu af 25 metra færi. Annað markið skoraði Tryggvi með góðu skoti úr teignum en það þriðja með glæsilegri vippu sem kom með hægri fæti í þokkabót. "Já, hægri löppinn er að gera það gott þessa dagana," sagði Tryggvi en hann skoraði einmitt með hægri löppinni í fyrstu umferðinni gegn Keflavík. Aðspurður um hvort markametið væri í hættu sagði Tryggvi að hann héldi að svo væri ekki. "Ég á náttúrulega metið ásamt öðrum og það er virkilega gaman. En ég er ekkert að hugsa um þetta met. Ég sagði nú í gríni fyrir tímabilið að ég ætlaði að skora 28 mörk en ég meinti lítið með því. En þetta byrjar vel," segir Tryggvi. Hann hefur nú skorað í átta leikjum í röð í efstu deild á Íslandi, en hann endaði síðasta tímabil sem hann lék hér á landi árið 1997, þá með Eyjamönnum, með því að skora í síðustu sex umferðunum. Nú hefur hann skorað í fyrstu tveimur umferðunum og nálgast hann óðfluga met Arnars Gunnlaugssonar sem skoraði í 11 leikjum í röð á sínum tíma með ÍA. "Þetta er annað met sem ég hugsa ekkert um. Ég vill bara að FH-liðinu gangi sem best."Tryggvi er að vonum sáttur með byrjun FH-inga á Íslandsmótinu. "Það var mjög erfitt að spila í þessum vindi en við náum að skora fimm mörk og sínum að það er virkilega mikill hæfileiki í þessu liði," segir Tryggvi. Hann kveðst ekki viss um hvort þetta FH-lið sé það sterkasta sem hann hafi spilað með hér á landi. "Eyjaliðið 1997 var nú fínt og mjög vel spilandi. Það er mjög erfitt að bera þetta saman en það er ljóst að ég er hluti af mjög öflugri liðsheild hér hjá FH í dag."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Fleiri fréttir Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Afturelding - Stjarnan | Topplið Lengjudeildar með brothætta gesti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Segir styttast í fyrsta sigurinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Næstum því hundrað leikmenn á þessu HM fæddir í Frakklandi Sjá meira