Fasteignasölu lokað 9. maí 2005 00:01
Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala er tekin til starfa af fullum krafti. Hún hefur meðal annars lokað einni fasteignasölu tímabundið þar sem enginn löggildur fasteignasali starfaði þar á þeim tíma, að sögn Þorsteins Einarssonar hæstaréttarlögmanns, formanns nefndarinnar. Fasteignasalan var opnuð aftur þegar þau mál voru komin í lag. Þorsteinn vildi ekki gefa upp hvaða fasteignasala hefði átt hlut að máli, enda væru nefndarmenn bundnir ströngum trúnaði. Birgir Birgisson, löggildur fasteignasali Remax í Kópavogi, staðfesti aðspurður að um þá fasteignasölu hefði verið að ræða. "Það var ekki búið að afgreiða löggildingarumsókn mína í dómsmálaráðuneytinu og lokunin varði seinnipart dags þar til snemma morguns daginn eftir," sagði hann. "Eftirlitsnefndin hefur komið hér, farið yfir reksturinn og ekki gert athugasemdir við hann. Við vinnum í samstarfi við nefndina og fögnum tilkomu hennar." Þorsteinn kvaðst ekki hafa á takteinum fjölda mála sem nefndin hefði fjallað um á starfstíma sínum, en hún tók til starfa 1. oktober samkvæmt endurskoðuðum lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa. "Langflestum þeirra er lokið með því að ekkert hefur þurft að aðhafast," sagði Þorsteinn, sem kvað erindi ýmist send til nefndarinnar eða tilkomin vegna frumkvæðisskyldu hennar. Hann sagði að ákvæði laganna um vörslufjárreikninga fasteignasala hefði tekið gildi 1. apríl, þannig að nú væru lögin orðin virk í heild sinni. "Okkar eftirlit er fólgið í því að stýra mönnum inn á það að fylgja þessum reglum sem hafa verið settar. Ef okkur sýnist að mál þurfi frekari athugunar við köllum við eftir skýringum og gögnum frá málsaðilum til að gefa mönnum færi á að skýra mál sitt. Ef brot reynist alvarlegt getur komið til viðurlaga sem felast í áminningu. Til þess úrræðis hefur ekki verið gripið enn. Ef brotið er alvarlegt eða ítrekað getur komið til tímabundinnar sviptingar löggildingar til að gegna starfi fasteignasala, að ákveðnu ferli undangengnu."
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira