Þar sem tíminn stóð í stað 6. febrúar 2005 00:01
Ferðamálaráð tilkynnti á dögunum að verkefnið Pompeii norðursins hlyti 5 milljóna króna styrk til uppgraftar gosminja frá Vestmannaeyjagosinu 1973. Grafin verða upp nokkur hús sem standa undir vikurlagi og útbúið sýningarsvæði með upplýsingum um gosið. Verkefnið dregur nafn sitt af rómverskum bæ sem á sínum tíma eyddist í miklu eldgosi. Eldi að bráð Pompeii er á fallegum stað við Napólíflóann en talið er að bærinn hafi tekið að byggjast á 7. öld f.Kr. Fyrstu aldirnar sátu ýmsir þjóðflokkar þar að völdum og háðu þeir marga hildi við valdhafana í Róm. Það var ekki fyrr en 89 f. Kr. að Rómverjar náðu bænum á sitt vald og gerðu hann að nýlendu sinni. Þar var að verki hinn grimmi harðstjóri Súlla. Pompeii gegndi mikilvægu hlutverki sem miðstöð sjóflutninga á Appenínaskaga. Á þessum slóðum eru jarðhræringar og eldsumbrot algeng en eldfjallið Vesúvíus setur svip sinn á Napólíflóann. Árið 79 e. Kr. varð gífurlegt eldgos í fjallinu nánast fyrirvaralaust og höfðu íbúar Pompeii og nálægra bæja því ekkert ráðrúm til að forðast glóandi heitt flikrubergið sem á augabragði færði þá í kaf. Þessu lýsir sagnaritarinn Plíníus í bréfi til vinar síns Takítusar á eftirminnilegan hátt. Miklir jarðskjálftar og flóðbylgjur fylgdu í kjölfarið. Talið er að um 20.000 manns hafi búið í Pompeii og fórust nær allir íbúarnir í hamförunum. Dýrðin opinberuð Pompeii og bæirnir í kring féllu brátt í gleymskunnar dá og lágu því hjúpaðir hrauni í hálfa aðra þúsöld. Árið 1599 uppgötvuðust þeir hins vegar fyrir tilviljun þegar verið var að beina ánni Sarno í nýjan farveg en sagan segir að hinir trúuðu kaþólikkar sem þar voru að verki hafi grafið í snarhasti yfir Pompeii þegar þeir sáu hinar frægu erótísku veggmyndir sem skreyta veggi margra húsa þar. Árið 1748 var bærinn hins vegar grafin upp á ný en tíu árum áður hafði uppgröftur farið fram í nágrannabænum Herculaneum. Pompeii hafði verið svo vel varðveittur í tímahylki sínu að allt var þar nánast eins og verið hafði tæpum sautján öldum fyrr. Greinilegt var á öllu að íbúarnir höfðu lifað í lystisemdum, í bænum mátti finna stórt hótel, baðhús og fallegar villur prýddar fögrum veggmyndir sem margar hverjar eru afar erótískar. Hafa þessar minjar æ síðan glatt ferðamenn og fræðimenn jöfnum höndum, líkt og Pompeii norðursins mun vonandi gera í framtíðinni.
Erlent Fréttir Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Fleiri fréttir Íri réðst á bandaríska herþotu með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Sjá meira