Stofna nefnd um lausn fanga 6. febrúar 2005 00:01
Forystumenn í Palestínu og Ísrael samþykktu á laugardag að stofna sameiginlega nefnd sem fjalla á um lausn pólitískra fanga sem Ísrealar hafa í haldi. Þetta kemur í kjölfar þess að Ísraelar létu níu hundruð fanga lausa í síðustu viku. Nánustu samstarfsmen Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmouds Abbas, leiðtoga Palestínumanna, áttu fund á laugardag þar sem samkomulag náðist um stofnun nefndarinnar. Palestínumenn höfðu áður lýst gremju sinni yfir að ekki skyldu fleiri fangar hafa verið látnir lausir í síðustu viku en alls sitja um sjö þúsund Palestínumenn í ísrealskum fangelsum. Sá árangur sem nú virðist vera að nást í málum palestínskra fanga tengist því að á þriðjudag hefst fundur um friðarhorfur í Mið-Austurlöndum í hafnarbænum Sharm el-Sheik í Egyptalandi. Með því að samþykkja farveg fyrir umræður um lausn pólitískra fanga hefur því málefni verið ýtt út af fundarborðinu í næstu viku. Þetta vekur vonir um að meiri árangur náist í viðræðum um önnur mál, svo sem eins og hvernig staðið verður að afhendingu hernumdra svæða til Palestínumanna. Líklegt er talið að Ísraelsemenn láti af hendi stjórn í borginni Jeríkó um leið og fundinum í næstu viku lýkur. Í kjölfarið er búist við því að þeir láti af stjórn af bæjunum Tulkarem, Qalqiliya, Betlehem og Ramallah. Málefni pólitískra fanga hefur hingað til verið einn helsti ásteytingarsteinn í viðræðum Ísrealsmanna og Palestínumanna og hafa Palestínumenn ekki viljað hefja viðræður um önnur deiluefni áður en niðurstaða fengist í málefni fanganna. Þeir níu hundruð fangar sem látnir voru lausir fyrir helgi sátu allir inni fyrir annað en ofbeldisbrot en nefndin sem nú hefur verið stofnuð mun ekki útiloka að menn sem grunaðir eru um þátttöku í árásum verði látnir lausir. Meðal þeirra sem látnir hafa verið lausir er Qassam Barghouti, sonur Marwans Barghouti. Qassam var handtekinn árið 2003. Ísrealar eru hins vegar ófáanlegir til að ræða lausn Marwans þar sem hann afplánar fimmfaldan lífstíðardóm fyrir þátttöku í mannskæðum árásum.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira