Frelsunar úr Auschwitz minnst 27. janúar 2005 00:01
Einhver nöturlegasti staður á jörðu er án efa Auschwitz, útrýmingabúðir nasista í Póllandi. Í dag var þess minnst að sextíu ár eru frá því að fangarnir þar voru frelsaðir. Ein og hálf milljón manna var drepin í útrýmingarbúðunum í Auschwitz-Birkenau: gyðingar, sígaunar, hommar og lesbíur og aðrir sem áttu ekki heima í hreinum heimi þýskra nasista. Enn þann dag í dag er Auschwitz ömurlegur staður sem ber merki þess sem þar fór fram. Þess var í dag minnst að sextíu ár eru frá því að þeir sem þar komust af voru frelsaðir, á köldum, snjóþungum degi í janúar árið 1945. Sjö þúsund manns voru þá á lífi í búðunum. Í dag var kveikt þar á kertum og víða í Evrópu var atburðanna minnst með þögn. Þeir sem eftir lifa leggja áherslu á að atburðirnir í Auschwitz og hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar gleymist aldrei. Eva Mozes Kor heimsótti fangabúðirnar í dag, en hún var þar sjálf sem barn þegar rússneskir hermenn frelsuðu fangana. Hún segir aðeins eina leið fyrir fórnarlömb nasismans að komast af. Að fyrirgefa. Annað fórnarlamb, Esther Gayzaltz, sem býr í Ísrael tekur í saman streng. Hún segir að 60 ár séu langur tími en samt finnist henni eins og allt hafi gerst í gær. Sársaukinn hverfi aldrei. Hún segist hins vegar ekki finna fyrir hatri í garð neins. Önnur kynslóð hafi framið glæpina og ekki sé réttlátt að kenna barnabörnum um gjörðir afa sinna og amma. Heimurinn verði að finna leið til að lifa í friði því lífið sé svo stutt en samt svo fallegt og dásamlegt.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira