Framtíð Íraks veltur á al-Sistani 27. janúar 2005 00:01
Framtíð Íraks veltur að stórum hluta á einum manni. Sá nefnist æjatolla Ali al-Sistani og er talinn áhrifamesti maður Íraks. Þess er beðið með eftirvæntingu hvernig framkvæmd kosninganna í Írak um helgina tekst til. Úrslitanna er ekki beðið með sömu eftirvæntingu. Það liggur ljóst fyrir að það verða stjórnmálahreyfingar sjíta sem bera sigur úr býtum og einn maður mun eftir sem áður ráða einna mestu um örlög Íraks og Íraka. Hann er ekki einn þeirra fjöldamörgu stjórnmálamanna sem komið hafa fram á sjónarsviðið undanfarið heldur hlédrægur klerkur á áttræðisaldri. Æjatolla Ali al-Sistani er nafn sem margir hafa heyrt í fréttum undanfarin tvö ár eða svo. Hann er líklega virtasti og æðsti klerkur meðal sjíta, ekki bara í Írak heldur um allan heim. Sjítar eru um 60 prósent Íraka og þeir fara eftir því sem æðsti leiðtogi þeirra segir þó að hann sjáist nánast aldrei, veiti ekki viðtöl eða haldi ekki ræður og hafi raunar um langa hríð nánast ekki farið út fyrir veggi moskunnar sem hann dvelur í í borginni Najaf. Þó má nálgast ráðgjöf hans og skoðanir á Netinu. Þeir sem hafa hitt hann segja hann skarpan, víðlesinn og vel með á nótunum þrátt fyrir einangrunina og að raun sé undravert hversu vel hann fylgist með. Og vald hans virðist mikið. Þegar harðlínuklerkurinn Muktada al-Sadr gerði hersetuliðinu lífið leitt á síðasta ári voru það ekki hermenn, gráir fyrir járnum, sem unnu á honum sigur heldur al-Sistani. Hann er að líkindum ástæða þess að trúarbragðastríðið sem skæruliðar og hryðjuverkamenn reyna að koma af stað í Írak er andvana fætt. Nánir samverkamenn hans eru vinsæl skotmörk hryðjuverkamanna en allt kemur fyrir ekki. Al-Sistani hefur gefið út þau fyrirmæli að sjítar haldi ró sinni og gjaldi ekki líku líkt. Hann vill að óbreyttir Írakar fái loksins einhverju ráðið um eigin örlög og gang mála í landinu. Þó að hann sé þeirrar skoðunar að koma ætti á fót trúarríki í Írak vill hann ekki ganga jafn langt og klerkarnir sem ráða í Íran þaðan sem hann er ættaður. Hann vill halda trú og ríki nokkuð aðskildum. Framtíð Íraks að loknum kosningum veltur að stórum hluta á al-Sistani að mati þeirra sem til þekkja. Bæði súnnítar og Kúrdar, sem verða örugglega í minnihluta, hafa af því nokkrar áhyggjur að sjítar sjái sér ekki hag í því að veita þeim aðgang að valdastöðum eða að eiga við þá nokkurs konar samstarf. Al-Sistani hefur hins vegar lýst því yfir að burtséð frá úrslitum kosninganna sé mikilvægt að súnnítar taki þátt í uppbyggingu nýrrar stjórnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Sjá meira