Banna birtingu auglýsinganna 25. maí 2005 00:01
Auglýsingar Umferðarstofu, sem birst hafa í sjónvarpi og blöðum og sýna lítil börn í hættulegum aðstæðum, brjóta í bága við samkeppnislög og hefur birting þeirra verið bönnuð samkvæmt ákvörðun Samkeppnisráðs í dag. Í auglýsingunum sést lítið barn hlaupa fram af svölum háhýsis meðan faðir þess lítur undan. Karlmaður sést hlaupa niður stiga með lítið barn í fanginu og rekast þar á konu með þeim afleiðingum að hún fellur um. Þá sést karlmaður sveifla barni í hringi í kring um sig og missa það úr höndunum. Það var embætti umboðsmanns barna sem kvartaði yfir auglýsingunum. Að mati Umferðarstofu er verið að höfða til ábyrgðar fullorðinna í umgengni við börn með því að sýna ákveðna myndlíkingu áhættuhegðunar í daglegu lífi fólks sem tengd er við áhættuhegðun í umferðinni. Samkeppnisráð telur hins vegar að auglýsingarnar misbjóði börnum þar sem þær séu sýndar á þeim tíma sem líklegt er að börn sjái þær og heyri. Ráðið telur að þær hættur sem sýndar eru falli ekki undir hættur við hversdagslegar aðstæður og séu börn því varla í stakk búin til þess að skilja samlíkingu á þeim við hættur í umferðinni. Það er niðurstaða Samkeppnisráðs að það lýsi hættulegu atferli í skilningi samkeppnislaga að sýna lítið barn falla fram af svölum, að hlaupið sé með smábarn niður stiga og sveifla barni um og sýna það falla niður stigaop. Segir í ákvörðun ráðsins að í ljósi þess að Umferðarstofa hafi ekki kosið að fara að tilmælum Samkeppnisstofnunar, um að ljúka málinu með því að hætta birtingu auglýsinganna, telji ráðið nauðsynlegt að banna birtingu þeirra.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira