Heppinn að vera á lífi 30. apríl 2005 00:01 "
Ég vaknaði við reykskynjarann en þar sem hann hafði kvöldið áður vakið mig af tilefnislausu ætlaði ég bara að slökkva á honum," segir Teitur Haraldsson íbúi hússins á Dalvík sem brann í fyrrinótt. "Svo gat ég bara ekki dregið að mér andan og þá var mér ljóst hvernig var." Hann segir það mikla gæfu að það var spónarplötuhleri í svefnherbergisglugganum sem hann gat slegið úr í einu höggi. Glugginn er á annari hæð og tæpir þrír metrar til jarðar og því ætlaði Teitur að freista þess að hringja í slökkviliðið og fá þá til að koma sér til bjargar. "En ég var svo skjálfhentur að ég gat ekki hringt og því var ekkert annað að gera en að koma sér útum gluggan." Hann náði að prýla langleiðina niður svo ekki varð honum meint af fallinu. Hinsvegar var hann sendur á Sjúkrahús Akureyrar en talið var að hann væri með reykeitrun. Teitur var enn á sjúkrahúsinu þegar Fréttablaðið fór í prentun og hafði því ekki séð húsið eftir brunan. "Vinir mínir hafa þó sagt mér að það sé talsvert illa farið en ég trúi því ekki að það sé ónýtt. Þetta hús er steypt allan hringinn. En mesti skaðinn er sá að allar myndirnar af mér og kærustunni og fjölskyldunni eru allar farnar." Hann segir að hann sé heppinn maður því ekki hefði verið spurt að leikslokum hefði hann hennt reykskynjaranum líkt og til stóð að gera. Hann hefur mætt einstökum hlýhug af samstarfsmönnum sínum í Norðurströnd sem er útgerðarfyrirtæki staðarins. "Mér hefur meðal annars verið boðið hús til að búa í en til þess þarf ekki að koma þar sem það er skúr fyrir utan húsið sem slapp alveg og hann verður hugsanlega bráðabirgðarheimili." Teitur hafði um skeið verið að byggja upp húsið sem heitir Sólborg og er eitt af elstu húsum bæjarins en það var byggt árið 1913. Að sögn lögreglu er ekki vitað um eldsupptök en Teitur telur líklegt að eldurinn hafi komið upp í herbergi þar sem hann hefur tölvur og önnur tæki.
Fréttir Innlent Mest lesið Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Innlent Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Innlent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Innlent Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Erlent Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent Málið áfall fyrir embættið Innlent Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Innlent Frekari breytingar í Valhöll Innlent Fleiri fréttir Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Mun sjá eftir árásinni alla ævi Segir lögreglumann sem njósnaði hafa gert mistök Frekari breytingar í Valhöll Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Lítur málið mjög alvarlegum augum Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Kristófer Breki nýr formaður Vöku Skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða tilbúin Gætu þurft að endurskoða aukastörf lögreglumanna Mjöll Snæsdóttir er látin Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Jafnréttisstofa krefur Ingu Sæland um útskýringu á vali á stjórnarmönnum „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Vill að þingflokkar vinni saman að því að stytta frí þingmanna Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi Málið áfall fyrir embættið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Sjá meira
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent