Innlent

Framboð til kosninga í Reykjavík

Mun fleiri hafa tilkynnt um framboð í prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor en í prófkjör hjá öðrum flokkum. Prófkjör flokksins verður þó ekki haldið fyrr en 4. og 5. nóvember. Kosning á lista hefur verið bindandi hljóti menn 50 prósent atkvæða í það sæti. Björn Bjarnason, sem er í fyrsta sæti listans, mun ekki gefa kost á sér aftur. Þá er einnig ljóst að Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sem nú er í þriðja sæti mun ekki bjóða sig fram aftur. Júlíus Vífill Ingvarsson hefur tilkynnt að hann muni sækjast eftir einu forystusæti listans og er fastlega gert ráð fyrir að hann muni bjóða sig fram í fyrsta sætið. Þá hafa einnig raddir verið uppi um að Guðlaugur Þór Þórðarson muni gefa kost á sér í fyrsta sætið. Ef úr verður eru þeir fjórir sem gefa kost á sér í forystu flokksins í borginni, en þegar hafa Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Gísli Marteinn Baldursson tilkynnt það. Það er nokkuð síðan tilkynnt var að Ólafur F. Magnússon muni leiða Frjálslynda flokkinn og Margrét Sverrisdóttir verður í öðru sæti. Ekki hefur verið tilkynnt um önnur sæti, en eftir uppstillingu mun flokkurinn bjóða upp á fléttulista. Innan Framsóknarflokksins ætlar Anna Kristinsdóttir gegn Alfreð Þorsteinssyni í slaginn um fyrsta sæti. er fastlega gert ráð fyrir að Björn Ingi Hrafnsson tilkynni fljótlega að hann bjóði sig fram til forystu í borginni. Ekki hefur verið ákveðið hvernig verður raðað á listann, en á kjördæmaráðsfundi, sem verður líklega í næsta mánuði, verður ákvörðun tekin um niðurröðunina. Reiknað er með prófkjöri, en framsóknarmenn eru ekki á eitt sáttir um hversu opið það verður. Einungis þrír hafa tilkynnt um framboð hjá Samfylkingunni: Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein í fyrsta sætið og Stefán Jóhann Stefánsson í öruggt sæti. Ekkert hefur verið ákveðið um prófkjör innan flokksins. Þá hafa þrír tilkynnt að þeir stefni á öruggt sæti hjá vinstri grænum: Svandís Svavarsdóttir í fyrsta sætið, Árni Þór Sigurðsson í annað sætið og Grímur Atlason í þrjú fyrstu sætin. Einn hefur sóst eftir fjórða sætinu. Framboðsfrestur rennur út 16. september og prófkjör fer fram 1. október.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×