Gallar í nýbyggingum Skuggahverfis 18. ágúst 2005 00:01 "
Því er ekki að neita að það hefur gengið erfiðlega að fá verktakann til að klára verkið," segir Einar I. Halldórsson framkvæmdastjóri félagsins 101 Skuggahverfi sem hefur umsjón með uppbyggingu nýs íbúðahverfis á milli Lindargötu og Skúlagötu. Þar hafa risið háar íbúðablokkir með sjötíu og níu íbúðum og þegar hefur verið flutt í fimmtíu þeirra að sögn Einars. Þær upplýsingar fengust frá fasteignasölunni Eignamiðlun að allar íbúðirnar hafi verið seldar. Kvartanir hafa borist vegna slæms frágangs og eru dæmi um að veggir séu skakkir og leki sé í íbúðum sem eigi að heita tilbúnar. Að sögn Einars er það ekki óalgengt að einhverjir slíkir gallar kunni að finnast á jafn stórum byggingum sem þessum en hins vegar sé það óvanalegt að ráða þurfi annan verktaka til þess að ljúka verkinu. Verktakafyrirtækið Eykt reisti byggingarnar en nú hefur 101 Skuggahverfi fengið Íslenska aðalverktaka og Þarfaþing til þess að ljúka verkinu að sögn Einars. "Við höfum orðið fyrir töluverðum útgjöldum vegna tafa og vanefnda að hálfu verktakans og nú er lögmaður okkar að vinna að því að við fáum þann skaða bættann," segir Einar og ítrekar enn fremur að íbúar munu ekki bera skaðann. Lögmaður Eyktar er einnig komin í málið. Pétur Guðmundsson, forstjóri Eyktar, segir að um mikinn misskilning sé að ræða hjá Einari og úttektarskýrslur frá byggingaryfirvöldum geti vitnað um það. Hann segir að reynt sé að koma sök yfir á Eykt sem aðrir verktakar eigi. Flestir íbúanna sem blaðamaður Fréttablaðsins hafði samband við sögðust taka óþægindunum með æðruleysi þar sem þeir væru vissir um að aðeins væri tímaspursmál hvenær lokið yrði við frágang. Þó segjast þeir ekki jafn vissir um æðruleysi annarra sem sumir hverjir hafi þurft að bíða eftir íbúðum sínum í marga mánuði vegna deilnanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira