Borgin og flugfélög ræða flugvöll 18. ágúst 2005 00:01
Fulltrúar FL Group og Flugfélags Íslands hafa rætt við borgaryfirvöld um möguleikan á nýjum Reykjavíkurflugvelli á Lönguskerjum. Formaður skipulagsráðs segir viðræðurnar skref í átt að því að lausn finnist á málinu. "Ég tel að nú séum við að ná umræðunni í átt að lausnum og að sú stefna sem málið hefur tekið sé mjög jákvæð," segir Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, en fulltrúar FL Group og Flugfélags Íslands gengu á fund stýrihóps um heildarskipulag Vatnsmýrinnar á dögunum. Dagur segir að það geti markað vatnaskil að flugrekstraraðilar séu nú tilbúnir að vinna að nýjum lausnum sem breið sátt geti skapast um. "Menn hafa verið sammála um að ná þessari umræðu upp úr skotgröfunum og heiðurinn að þessari opnun á umræðuna eiga forsvarsmenn FL Group og Flugfélags Íslands en auk þess eiga auðvitað samgönguráðherra og borgarstjóri sinn góða þátt í að málið sé loks komið í uppbyggilegan farveg. Frá flugtæknilegu sjónarmiði töldu fulltrúarnir Álftanes og Löngusker bestu kostina af þeim sem nefndir hafa verið í grennd við höfuðborgarsvæðið. Líklegast eru Löngusker þó raunhæfust út af ýmsum ástæðum, þar á meðal umhverfissjónarmiðum. Fulltrúarnir lýstu sig mjög reiðubúna að fullkanna þessa kosti ef það gæti orðið til þess að eyða óvissu um starfsumhverfi innanlandsflugs en öllum er þó ljóst að það er háð því að það leiði ekki til kostnaðar sem leggist á reksturinn sjálfan," segir Dagur. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segir félagið í góðu samstarfi við borgina og samgönguyfirvöld og viðræðurnar sem nú ættu sér stað, væru í mjög jákvæðum farvegi. "Okkar fyrsti kostur fyrir Reykjavíkurflugvöll er Vatnsmýrin og við höfum ítrekað það áður. Við höfum hagsmuni okkar farþega að leiðarljósi og að sem minnst röskun sé fyrir okkar farþega. Ég held að fólk vilji hafa flugvöll í Reykjavík og það er það sem við erum að reyna að ganga út frá," segir Árni.
Fréttir Innlent Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Sjá meira