Chelsea í góðum málum 5. mars 2005 00:01
Chelsea er með átta stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og þar að auki hefur liðið leikið einum leik færra en Man. Utd. United hefði getað hangið í Chelsea með sigri á Crystal Palace en vörn Palace hélt undir stórskotahríð leikmanna United sem voru manni fleiri síðustu 25 mínútur leiksins. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, játaði eftir leikinn að staða United væri vonlítil. "Þetta voru hræðileg úrslit. Þegar lið ætla sér sigur í ensku úrvalsdeildinni verða þau að vinna þessa leiki og það gerðum við ekki í dag. Það er svo sannarlega á brattann að sækja hjá okkur núna," sagði Ferguson frekar fúll og skal engan undra. "Við höfum gefið Chelsea góða forystu á toppnum. Annars get ég ekki kvartað yfir framlagi leikmanna í leiknum sem var mjög gott. Þeir lögðu sig alla í leikinn og áttu skilið að sigra hann." Chelsea spilaði eftir að búið var að blása af leik United og Palace. Þeir tóku forystuna snemma gegn Norwich en urðu örlítið skelkaðir þegar Norwich jafnaði leikinn í síðari hálfleik. Eiður Smári Guðjohnsen kom af bekknum í síðari hálfleik og hann átti stóran þátt í öðru marki Chelsea sem Kezman skoraði. Portúgalinn Ricardo Carvalho rak síðan síðasta naglann í kistu Norwich skömmu fyrir leikslok. Vonir Liverpool um að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð dofnuðu mjög þegar liðið tapaði gegn Newcastle, 1-0. Laurent Robert skoraði sigurmarkið með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu og fékk þar með uppreisn æru en hann hefur mátt sitja löngum á varamannabekk Newcastle frá því að Graeme Souness tók við liðinu. "Hann átti frábæran leik," sagði Souness sem er greinilega að taka Robert í sátt. "Markið var fallegt og hann lagði líka mikið á sig. Ég var verulega ánægður með hans frammistöðu. Samband okkar er stormasamt. Ég elska hann og hann elskar mig. Samt endum við alltaf í rifrildum. Það er allt í lagi ef hann bregst við með því að skora mörk eins og í dag."
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Dóttir Scholes fékk svakalegt augnaráð frá pabba sínum Enski boltinn Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Enski boltinn Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Enski boltinn Áhorfandi hrækti á dómara í Garðabæ Íslenski boltinn Heimta að Ísrael verði vísað úr keppni Fótbolti Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Enski boltinn Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Körfubolti Á að reka umboðsmanninn á stundinni Enski boltinn „Guð hvað ég hafði rangt fyrir mér og ég er ánægður með það“ Íslenski boltinn Úlfur talinn sá allra besti vestanhafs Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Sakna sjálfsmynd liðsins“ Arsenal að stela Eze frá Tottenham Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Leik lokið: Fram - Víkingur 2-5 | Markasúpa er Víkingar komust aftur á sigurbraut Uppgjörið: Þróttur-Valur 0-2 | Valskonur á siglingu Markvörður Fluminense tók heimsmetið af Peter Shilton Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Diljá innsiglaði sigur toppliðsins Heimta að Ísrael verði vísað úr keppni Á að reka umboðsmanninn á stundinni Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Valdi úrvalslið Púllara: „Hefði átt að setja Djimi Traoré í vörnina“ Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Nánast allar treyjur uppseldar fyrir EM Áhorfandi hrækti á dómara í Garðabæ Erfitt að horfa á félagana detta út Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Havertz „Bara heilt maraþon eftir, þá er ég búinn með þrennuna“ Barátta Blika um sæti í Sambandsdeild í beinni á Sýn Sport „Skilyrði félagsins fyrir sölu hafa ekki verið uppfyllt“ Úlfur talinn sá allra besti vestanhafs Litla systir keppir nú líka fyrir landsliðið „Guð hvað ég hafði rangt fyrir mér og ég er ánægður með það“ „Nei, þetta var örugglega ég að spýta á þig“ Stoltir af að klófesta hæfileikabúnt frá Íslandi Giftu sig i miðjum hafnaboltaleik en þurftu að vera mjög fljót að því Bræðraslagur í bikarúrslitaleiknum í ár: „Er alltaf að reyna að ögra mér“ Dagskráin: Besta deild kvenna og baráttan um Meistaradeildarsæti Sjá meira